200 millj. $ markinu náð
Rótarýhreyfingin hefur náð að safna 200 millj. $ mótframlagi við 200 millj. $ framlag Gates sjóðsins sem allt er notað í baráttunni við lömunarveikina en stefnt er að því að Rótarýhreyfingin ljúki átakinu í lok júní á næsta ári.
Lesa meira
Fréttir frá umdæmisstjóra
Hvernig væri að gerast ráðgjafi í þjónustuverkefnum erlendis?
Rótarýfélagar um heim allan vinna að afar fjölbreyttum þjónustuverkefnum með aðstoð Rótarýsjóðsins. Til þess að þau skili sem mestum árangri þarf að meta þau, fylgja þeim eftir og sjá til þess að vel sé staðið að ráðstöfun fjármagns.
Lesa meira
Vísa séra Hjálmars
Meðal ánægjulegustu starfa umdæmisstjóra er heimsóknir til allra klúbbanna. Í heimsókninni til Rótarýklúbbs Reykjavíkur gerði séra Hjálmar Jónsson grein fyrir fundarsókn sem ritari klúbbsins. Hann nefndi mætingarprósentuna en bætti svo við:
App til að finna Rótarýklúbb
Sú tíð er liðin að leita þurfi í handbókum eða hringja og spyrjast fyrir um hvar klúbbarnir eru og hvenær þeir hittast. Á vef rotary.org er að finna ókeypis hugbúnað sem hægt er að hlaða í IPhone og síma með Android stýrikerfi. Senn verður útgáfa til fyrir BlackBerry síma. Slóðin fyrir Rotary Club Locator app er: http://www.rotary.org/EN/ABOUTUS/SITETOOLS/MOBILEAPPS/Pages/mobile.aspx
Kristján Jóhannsson á stórtónleikum Rótarý í Salnum 6. janúar
Stórtónleikar Rótarý verða í Salnum í Kópavogi föstudagskvöldið 6. janúar kl. og á þeim verða veitt tónlistarverðlaun Rótarý umdæmisins. Stórsöngvarinn Kristján Jóhannsson syngur og Jónas Ingimundarson leikur undir á píanó.