Þetta helst

Kynningarfundur nýs klúbbs -2

eRótarý Ísland - nýjasti rótarýklúbburinn

Stofnfundur nýja klúbbsins var haldinn 18. apríl sl. og eru stofnfélagar 25 talsins. Umsókn um fullgildingu klúbbsins hefur verið send til Rotary International. Þegar viðurkenning klúbbsins hefur borist verður haldinn formlegur fullgildingarfundur. Fyrsti forseti klúbbsins var kjörin Agnes Gunnarsdóttir.

Lesa meira
 
Fræðslumót Michele

Undirbúningur að nýju starfsári í fullum gangi í klúbbunum

Verðandi forsetar og ritarar hittust á heils daga fræðslumóti í Menntaskólanum í Kópavogi þann 17. mars. Nú ættu allar stjórnir, sem taka við 1. júlí n.k., að vera búnar að hittast til að undirbúa næsta starfsár en mikilvægt er að sem flestir klúbbfélagar séu virkjaðir til starfa.

Lesa meira
 
Polio átak

200 millj. $ markinu náð

Rótarýhreyfingin hefur náð að safna 200 millj. $ mótframlagi við 200 millj. $ framlag Gates sjóðsins sem allt er notað í baráttunni við lömunarveikina en stefnt er að því að Rótarýhreyfingin ljúki átakinu í lok júní á næsta ári. Lesa meira
 
Gleðilegt ár

Gleðilegt nýtt ár

Rótarýumdæmið á Íslandi færir öllum rótarýfélögum, fjölskyldum þeirra og öðrum velunnurum bestu óskir um farsæld á nýju ári.

Öllum þeim sem lagt hafa hönd á plóginn við að gera rótarýstarfið ánægjulegt og gagnlegt eru færðar sérstakar þakkir. Megi nýtt ár verða ánægjulegt og árangursríkt

Lesa meira
 

Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning

Efraval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica