Saga klúbbsins

Upphafið

Fyrsta fundargerð Rótarýklúbbs Akureyrar er frá árinu 1938, svohljóðandi:
"Ár 1938, mánudaginn 21. mars kl. 3 e.h. voru undirritaðir samankomnir á Skjaldborg á Akureyri til þess að ræða um stofnun rótarýfélagskapar á Akureyri. Þessir voru mættir:

Framkvæmdastjóri Vilhjámur Þór
Skólameistari Sigurður Guðmundsson
Spítalalæknir Guðmundur Karl Pétursson
Póstmeistari Óli P. Kristjánsson
Skólastjóri Snorri Sigfússon
Rafvirki Indiriði Helgason
Sóknarprestur Friðrik J. Rafnar

Samþykkt var að stofna félagsskapinn til reynslu, en tilkynna hann ekki að svo stöddu, fyrr en séð væri, hvernig líkaði og gengi. Kosnir voru þessir menn til að vera í fyrstu stjórninni:

Sigurður Guðmundsson; með 5 atkv
Friðrik J. Rafnar&nbsp með 5 atkv
Óli P. Kristjánsson með 4 atkv.

Stjórnin skiptir með sér verkum. Ákveðinn var föstudagur sem samkomudagur kl. 3 e.h. Ákveðið var að koma saman aftur föstudaginn 1. apríl. Fleira ekki tekið fyrir, fundinum slitið."

Fundargerð þessi er með hendi Friðriks J. Rafnars vígslubiskups og er undirrituð af honum ásamt Vilhjálmi Þór.

Eitthvað mun þessi hópur hafa komið saman á næstu mánuðum og unnið að stofnun rótarýklúbbs á Akureyri, en 4. september um haustið var haldinn formlegur stofnfundur Rótarýklúbbs Akureyrar. Voru þar staddir hinir sömu menn og nefndir voru í upphafi, að undanskildum Sigurði Guðmundssyni skólameistara, en einnig voru á fundinum Ólafur Thorarensen bankastjóri og Steinn Steinsen bæjarstjóri. Ennfremur voru komnir norður til leiðbeiningar frá Rótarýklúbbi Reykjavíkur Steingrímur Jónsson rafveitustjóri, Ludvig Kaaber bankastjóri, Carl Olsen stórkaupmaður og Ragnar Blöndal kaupmaður.

Á undirbúningsfundi sem haldinn hafði verið tveim dögum fyrr af flestum sömu mönnum og hér hafa verið nefndir flutti Steingrímur Jónsson fyrirlestur og skýrði frá starfsháttum og tilgangi rótarýklúbbanna.
Samþykkt var að stofna Rótarýklúbb Akureyrar, og gerðust allir viðstaddir heimamenn stofnfélagar, ennfremur var ákveðið að Sigurður Guðmundsson skólameistari skyldi vera stofnfélagi samkvæmt eigin ósk en hann átti þess ekki kost að sækja fundinn.
Kosin var stjórn klúbbsins og var hún þannig skipuð:

Friðrik J. Rafnar vígslubiskup forseti
Guðmundur Karl Pétursson yfirlæknir varaforseti
Ólafur Thorarnesen bankastjóri ritari
Sigurður Guðmundsson skólameistari gjaldkeri
Óli P. Kristjánsson póstmeistari stallari.

Fundardagur var ákveðinn föstudagur og helst sú skipan enn í dag.
Rótarýklúbbur Akureyrar var fámennur félagsskapur fyrstu árin, stofnendur voru níu og og meðlimum fjölgaði hægt. Hefur það trúlega verið ástæðan fyrir því að klúbburinn sótti ekki strax um eða hefur ekki verið fær um að óska eftir réttindum sem fullgildur klúbbur innan Rotary International.
Árið 1941 voru félagar orðnir sextán og á fundi 4. júlí það ár skýrði þáverandi forseti, Guðmundur Karl Pétursson, frá því, að klúbburinn myndi geta fengið staðfestingu sem fullgildur klúbbur í Rotary International, og var samþykkt að óska eftir þeirri staðfestingu.


Stofnbréf Rótarýklúbbs Akureyrar sem fullgilds klúbbs innan Rotary International var gefið út 20. desember 1941, en það liðu tæpir sex mánuðir þar til það barst í hendur klúbbsins, en þá geisaði heimsstyrjöld og samgöngur milli heimshluta voru með öðrum hætti en nú í dag. En 13. júní 1942 afhenti Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri í Reykjavík stofnbréfið á fundi í Rótarýklúbbi Akureyrar, samkvæmt fyrirmælum frá Rotary International. Segir í fundargerð að athöfn þessi hafi farið virðulega fram og forseti, Guðmundur Karl Pétursson, hafi við það tækifæri þakkað Steingrími Jónssyni sérstaklega fyrir allt hans starf og fyrirhöfn í þágu klúbbsins og kvað svo að orði að klúbburinn ætti engum meir að þakka tilveru sína en honum.
Fundardagur Rótarýklúbbs Akureyrar hefur sem fyrr segir alla tíð verið föstudagur. Fyrst í stað voru fundir síðdegis en lengst af hafa þeir verið á hádegi. Upphaflega virðast fundir klúbbsins hafa verið rabbfundir, menn komu saman síðdegis á föstudögum og spjölluðu saman yfir kaffibolla. Það er ekki fyrr en á 76. fundi frá upphafi - 1. mars 1940 - að þess er getið, að flutt hafi verið fræðsluerindi, en þá talaði Snorri Sigfússon um skólamál og fyrirkomulag skóla.Eftir það sýnist svo, að á allflestum fundum hafi verið flutt eitthvert fræðsluefni, þó að ekki væri það föst regla fyrstu árin.
Rótarýklúbbur Akureyrar hefur annazt fjögur umdæmisþing íslenzka rótarýumdæmisins, fyrst árið 1948, síðan 1950, 1962 og 1974.
Klúbburinn hefur lagt til þrjá umdæmisstjóra, Friðrik J. Rafnar 1950-1951, Sverri Ragnars 1961-1962 og Hjört Eiríksson 1973-1974. Tveir aðrir félagar klúbbsins hafa einnig gegnt embætti umdæmisstjóra, Lárus Jónsson og Kristinn G. Jóhannsson, en þeir voru þá félagar í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar.
Meginstarf Rótarýklúbbs Akureyrar hefur verið með líkum hætti og hjá öðrum rótarýklúbbum hérlendis, það hefur byggzt upp á því að efla kynni milli einstaklinga og starfsstétta, fræðslu og upplýsingastarfsemi. Samskipti við aðra klúbba hafa verið nokkur, einkum á síðari árum. Haldnir hafa verið sameiginlegir fundir með rótarýklúbbum á Norður- og Austurlandi - þó ekki reglulega.


Fyrr á árum lét klúbburinn nokkuð að sér kveða við skógrækt og voru gróðursettar trjáplöntur bæði í Kjarnaskógi og að Botni í Hrafnagilshreppi. Klúbburinn hefur nokkuð beitt sér fyrir námsmannaskiptum og ýmissi fyrirgreiðslu við erlenda gesti í tengslum við rótarýklúbba bæði vestan hafs og austan.


Af þeim mönnum sem stofnuðu Rótarýklúbb Akureyrar, er nú aðeins einn á lífi, Óli P. Kristjánsson, fyrrverandi póstmeistari. Alllangt er síðan hann hætti að sækja fundi. En einn er sá, er gerðist rótarýfélagi fyrir 40 árum og sækir enn fundi manna bezt, er það Sverrir Ragnars sparisjóðsstjóri. Hann var forseti Rótarýklúbbs Akureyrar 1947-1948 og umdæmisstjóri 1961-1962, sem fyrr segir. Var hann kjörinn Paul Harris félagi af hálfu klúbbsins árið 1981.


Rótarýklúbbur hefur aðstoðað við stofnun tveggja klúbba á Akureyri sem starfa í sama anda og hann og vinna að sömu málefnum.
Inner Wheel klúbburinn var stofnaður 20. maí 1975. Stofnendur voru 22 eiginkonur rótarýmanna. Fyrsti forseti Inner Wheel var Þorgerður Árnadóttir. Klúbburinn starfar af miklum þrótti, og eru fundir haldnir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar, mánuðina október ¿ apríl. Allflestar eiginkonur rótarýmanna eru félagar í Inner Wheel.


Karl II klúbburinn var stofnaður 3. febrúar 1977 og hafði Árni Árnason kaupmaður mestan veg og vanda af því. Karl II klúbburinn er félagsskapur manna á eftirlaunaaldri. Hittast þeir yfir vetrarmánuðina fyrsta þriðjudag hvers mánaðar, síðdegis. Fyrsti forseti Karl II var Eiríkur Sigurðsson fyrrv. skólastjóri.

Báðir þessir klúbbar starfa sjálfstætt, en eru í óformlegum tengslum við Rótarýklúbb Akureyrar. Markmið þeirra allra er hið sama, að stofna til kynna milli einstaklinga, sem ef till vill hefðu að öðrum kosti ekki þekkt hver til annars og jafnvel alið á fordómum hver í annars garð. Ef eitthvað hefur áunnizt í þeim efnum þá hefur ekki verið starfað til einskis.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica