Fundargerð 14. ágúst 2009
Fundur 3345 frá upphafi og 4. fundur á þessu starfsári.
Útdráttur Fundur 3345 frá upphafi og 4. fundur á þessu starfsári.
Forseti setti fund og bauð gesti velkomna sem kynntu sig. Þeir voru Oliver Scein frá Rotaryklúbbnum í Darmstad í þýskalandi og Stephen Bloon frá Ancorage Midtown Rótaryklúbbi í Alaska og Elísabet Hafstein.
Matarhlé var gefið . Jákvætt innslag kom fár Láru sem greindi frá hrifningu sinni af heimsókn á hannyrðasýningu að Hrafngili. Birgir forseti greindi frá að tillaga Botns- og skemmmtinefndar væri að fara í Botn 27. ágúst og klúbburinn muni greiða kostnað að venju og þetta sé venjulegur fundur.
Forseti mun umskipuleggja fundi með hliðsjón af þessu. Bernharð greindi frá Vestfjarðaferð sinni og sögnum af Kolbeini í Dal. Mættir voru 16 félagar og 6 mættu á fund Botns- og skemmtinefndar og er því mæting 79%.
Forseti kynnti að Hans Kristján Guðmundusson væri með erindi dagsins og Lára formaður Alþjóðanefndar sem sá um fundarerindi, kynnti starfsferill Hans en hann hefur áralanga reynslu af alþjóðasamstarfi í vísindum sem einnig var heiti á fyrirlestri hans.
Erindið var mjög áhugavert og fékk góðar undirtektir en hann rakti vísindasamstarf landans allt til Sæmundar fróða og sagði frá ýmsum sjóðum sem styrktu vísindasamstarfið.
Fundi var slitið með fjórprófinu um kl 13:30.
Fundarritari var Jón Hlöðver Áskelsson í forföllum Björns Teitssonar.
