Fundir falla niður í Rótarýklúbbi Eyjafjarðar vegna sumarleyfa í júlí og fyrstu viku ágústmánaðar. Fyrsti fundur að loknu sumarleyfi verður þriðjudaginn 9. ágúst nk. kl. 18:15.
Nýtt starfsár hófst hjá Rótarýhreyfingunni 1. júlí sl. Þá tók Tryggvi Pálsson, rótarýfélagi í Rkl. Reykjavík-Austurbæ, við sem umdæmisstjóri af Margréti Friðriksdóttur, rótarýfélaga í Rkl. Borgum í Kópavogi. Sama stjórn situr áfram í Rótarýklúbb Eyjafjarðar næsta starfsár.
20 ára afmælishóf Rótarýklúbbs Eyjafjarðar verður haldið á Hótel KEA þriðjudaginn 22. febrúar kl. 18:15. Helgi Þór Helgason, forseti Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, flytur ræðu um sögu klúbbsins. Mökum og gömlum félögum í tveggja áratuga sögu klúbbsins er boðið á fundinn.
Lesa meira20 ár eru í dag liðin frá stofnfundi Rótarýklúbbs Eyjafjarðar. Rótarýklúbbur Eyjafjarðar var stofnaður 12. febrúar 1991 að viðstöddum fjölda stofnfélaga og gesta úr Rótarýklúbbi Akureyrar. Fyrsti almenni fundur klúbbsins var haldinn viku síðar, 19. febrúar 1991. Fyrsti forseti klúbbsins var Jónas Franklín, læknir.
Lesa meiraStjórn Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, starfsárið 2011-2012, var kjörin á klúbbfundi 7. desember sl. Eiður Guðmundsson var kjörinn forseti, Helgi Vilberg sem ritari, og Jóhann Gunnar Jóhannsson var kjörinn gjaldkeri. Stjórnarskipti verða 1. júlí nk.
Lesa meiraJólafundur Rótarýklúbbs Eyjafjarðar verður haldinn á Hótel KEA þriðjudaginn 14. desember kl. 18:15. Gestur fundarins verður Sigríður Munda Jónsdóttir, aðstoðarumdæmisstjóri og sóknarprestur í Ólafsfirði, og mun flytja jólahugvekju. Mökum er skv. hefð boðið að sitja fundinn.
Lesa meiraÁ næsta fundi Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, þriðjudaginn 7. desember nk, mun fara fram stjórnarkjör. Kjörin verður stjórn klúbbsins fyrir starfsárið 2011-2012.
Lesa meiraÁ næsta fundi Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, þriðjudaginn 30. nóvember nk, munum við hafa létta umræðu um úrslit stjórnlagaþingskosninga. Ágúst Þór Árnason, klúbbfélagi, á sæti í stjórnlaganefnd sem hefur haft yfirumsjón með kosningunum og væntanlegu breytingarferli á stjórnarskrá.
Lesa meiraÁ næsta fundi Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, þriðjudaginn 23. nóvember nk, munu klúbbfélagar undir forystu forseta og ritara vinna að lokadrögum um hvernig standa skuli að afmælisundirbúningi. Rótarýklúbbur Eyjafjarðar fagnar 20 ára afmæli sínu 19. febrúar nk.
Lesa meiraÁ næsta fundi Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, þriðjudaginn 16. nóvember nk, mun Helgi Þór Helgason, forseti Rótarýklúbbs Eyjafjarðar, hafa framsögu um umdæmisþing Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi sem haldið var í Kópavogi í síðasta mánuði.
Lesa meira