Fundir framundan hjá Rótarýklúbbnum Görðum
Rótarýfundur Rkl. Görðum - 06. feb. 2012
12:15 - 13:30
Bæjarbraut 7, Jötunheimar Félagsheimili skátafélagsins Vífils og Hjálpasveitar skáta í Garðabæ
Kæru Rótarýfélagar.
Með bjartsýni að leiðarljósi í byrjun febrúar er boðað til fundar í Rótarýklúbbnum Görðum 6. febrúar nk.
Jón Benediktsson og Össur Stefánsson munu flytja sín starfsgreinaerindi. Þriggja mínútna erindið verður í höndum Guðrúnar Högnadóttur.
Eins og forseti greindi frá verður boðið upp á tertu í tilefni stórafmælis nokkurra félaga okkar á yfirstandandi starfsári.
Fundurinn er í umsjón starfsgreinnefndar, en formaður hennar er Guðmundur Guðmundsson og varaformaður Jóhann Steinar Ingimundarson.
Með Rótarýkveðju
Einar ritari
