Fréttir

UMF Stjarna í Garðabæ - 16.1.2012

Félagi okkar í klúbbnum Jóhann Steinar Ingimundarson formaður Stjörnunnar var fyrirlesari dagsins.  Erindi Jóhanns kallaði hann UMF Stjarnan, staðan, stefnumótun, framtíðin. Hann sagði fyrst frá núverandi stöðu, síðan stefnumörkun og að lokum gerði hann grein fyrir framtíðarstefnumótun fyrir félagið.
 

"Að byrgja brunninn" - 9.1.2012

Eirík Örn Arnarson prófessor í sálarfræði og yfirsálfræðingur á Landspítala var gestur fundar dagsins. Erindi Eiríks kallar hann “Að byrgja brunninn: forvörn þunglyndis meðal ungmenna”. Eiríkur Örn sagði frá könnun og rannsókn sem verið hefur í gangi lengi á þunglyndi unglinga. Sérstaklaga gagnsemi skimunar snemma sem forvörn. Nokkrar umræður og spurningar brunnu á félögum um þessi mikilsverðu mál.
 

Umfjöllun um geðveki - 2.1.2012

Styrmir Gunnarsson fv. ritstjóri var gestur fundarins. Hann fjallaði um persónuleg kynni sín af geðveiki og bók sína Ómunatíð sem kom út nú fyrir jólin. Sérstaklea gerði hann að umtalsefni aðstæður barna sem alast upp í fjölskyldum þar sem geðsjúkdómar foreldris koma við sögu. Eftir erindi sitt fékk Styrmir spurningar og talsverðar umræður spunnust á eftir þar sem Styrmir útskýrið betur nálgun sína á viðfangsefninu.
 

Jólafundur Rótarýklúbbsins Görðum - 18.12.2011

Árlegur jólafundur okkar í Garðakirkju er löngu orðinn að hefð í jólaundirbúniing klúbbfélaga og fjölskyldna þeirra.  Sr. Hans Guðberg Alfreðsson messaði í Garðakrikju og sungnir voru jólasálmar.  Að lokinni guðsþjónustu var haldið í safnaðarheimili Vídalínskirkju.  Þar beið okkar jólahlaðborð og á eftir jólatrésskemmtun.  Um 90 félagr með fjölsyldum sínum áttu þarna góða stund saman.
 

Ríkisfang ekkert - 12.12.2011

Á fundi klúbbsins í dag fengum við afar áhugaverða kynningu á bók eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur blaðakonu. Sigríður Víðis skrifaði bók sem kom út fyrr í haust um fjölskyldur, flóttamenn sem fluttust til Íslands frá Írak sem Palestínumenn haustið 2008. Fram kom m.a. hjá Sigríðar Víðis að konur þessar voru ríkisfangslausar í Írak og komust ekki lönd né strönd. Hún sagði okkur frá aðdragand þess að hún réðist í skráningu þessarar merku sögu og las jafnframt úr bókinni.
 

Brautryðjandinn - 5.12.2011

Í dag fengum við bókakynningu nr. 2.   Óskar Guðmundsson rithöfundur og sagnfræðingur  kynnti nýja bók sína Brautryðjandinn um ævi og störf Þórhalls Bjarnarsonar, prests, skólamanns, bónda, biskups ofl. Óskar stiklaði á stóru í ævi Þórahalls og setti í samhengi við tíðaranda og samfélagsmál hans samtíma.
 

Ævisaga Gunnars Gunnarssonar - 28.11.2011

fundurinn í dag var sá fyrsti í raöð þriggja þar sem við fengum höfunda ævisagna til að koma og kynna verk sín.  Fyrstur reið á vaðið Jón Yngvi Jóhannsson. Jón Yngvi sagði okkur frá nýrri ævisögu sinni um Gunnar Gunnarsson rithöfund. Las hann upp tvo stutta og kynnti okkur fyrir tveimur hliðum skáldsins. Þá sem kalla má Gunnar sem kapitalista og hina sem kommúnista. Að loknu erindi Jóns komu spurningar úr sal.  Gunnar Björn Gunnarsson afabarn skáldsins var gestur Guðmundar Guðmundssonar og tók hann þátt í umræðunum sem á eftir spunnust.
 

Heimsókn í Latabæ - 21.11.2011

Rótarýklúbburinn Görðum heimsótti myndber Latabæjar að Miðhrauni í Garðabæ.
Einar Karl Birgisson, Territory Manager hjá Latabæ tóka á móti okkur. Einar Karl greindi okkur í ítarlegu máli frá víðtækri starfsemi Latabæjar í fjölmörgum löndum í flestum heimsálfum. Bæði hvað varðar framleiðslu og dreifingu á barnaefninu vinsæla, hugmyndafræðinni að baki þess. Ekki síst frá vörumerkinu og mikilli framleiðslu og sölu matvæla ofl. sem tengist Lazy Town. Að lokinni kynningu stóð til að komast í myndver Latabæjar. Það var í útleigu og í notkun. Af skoðun þess gat því ekki orðið. Snæddum að lokum samlokur í boði Latabæjar.
 

Staðan í Kína - 14.11.2011

Magnús Björnsson var gestur fundarins í dag.  Magnús hefur búið í Kína og sagði okkur frá stöðu mála þar og framtíðarhorfum. Er breytinga að vænta á efnahagsstefnu Kínverja var yfirskrift erindis Magnúsar. Hann fór í saumana á áætlun kínverskra stjórnvalda 2011-2015 en megininntak hennar er aukin neysla Kínverja.

 

Góðir gestir frá Rótarýklúbbnum Borgum, Kópavogi - 7.11.2011

Á fundi klúbbsins í dag fengum við heimsókn frá fjórum félögum í Rótáryklúbbnum Borgum Kópavogi.  Það voru þau Kjartan Sigurjónsson, Kristján Guðjónsson, Kristján Hjálmar Ragnarsson og Lára Ingibjörg Ólafsdóttir.  Meginviðfangsefni fundarins voru..
Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica