Fréttir

0508364799_Bjarni_Thordarson

Bjarni Þórðarson er látinn - 3.2.2012

Félagi okkar, Bjarni Þórðarson er látinn. Bjarni fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1936 og gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 27.4.1979 fyrir starfsgreinina tryggingarstærðfræði og var alla tíð mjög virkur rótarýfélagi bæði í klúbbum okkar og í Rótarýumdæminu þar sem hann var umdæmisstjóri 2003-2004.

Lesa meira
 
Frá þorrablóti klúbbsins 2011

Þorra blótað og sopið úr horni kvennanna - 27.1.2012

Þorrablót klúbbsins var haldið að venju í hádeginu í gær. Mæting var góð og áttu menn glaða stund og var vel tekið á þorramatnum.

Lesa meira
 
Sigþór Jóhannesson forseti og Hafsteinn Ólafsson.

Nýr félagi - 9.1.2012

Hafsteinn Ólafsson framkvæmdastjóri Beitis ehf. í Vogum var tekinn í klúbbinn sl. fimmtudag. Hafsteinn er fæddur 11. febrúar 1952. Hann er uppalinn Hafnfirðingur en býr nú í Vogum þar sem þau hjónin, Hafsteinn og Þóra Bragadóttir reka saman fyrirtækið Beiti. Hann kemur í klúbbinn fyrir starfsgreinina ???

Er Hafsteinn boðinn velkominn í klúbbinn.

Lesa meira
 
Sigurbjörn Kristinsson

Sigurbjörn Ó. Kristinsson er látinn - 29.12.2011

Heiðursfélagi okkar, Sigurbjörn Ó. Kristinsson málarameistari er látinn.

Sigurbjörn eða Bjössi eins og hann var kallaður í vinahópi, fæddist 5. mars 1924. Hann gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 3. júní 1971 fyrir starfsgreinina húsamálun. Hann var alla tíð tryggur félagi og lét sig sjaldan vanta á fundi og í ferðir. Félagar þekktu hann best fyrir listmálun en á fjölmörgum jólamerkjum klúbbsins eru myndir eftir hann.

Lesa meira
 

Gleðileg jól! - 24.12.2011

Rótarýskógur Rkl. Hafnarfjarðar

Kæru rótarýfélagar og velunnarar Rótarý. Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar óskar ykkur gleðiríkra jóla og farsældar á nýju ári. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt rótarýár.

 
Jón Gunnar Stefánsson tekinn inn í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar

Jón Gunnar flytur heim - 8.12.2011

Tíður gestur kemur í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar

Jón Gunnar Stefánsson félagi í Rótarýklúbbi Keflavíkur hefur gengið í raðir Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar. Jón Gunnar hefur verið tíður gestur á fundum undanfarin ár og því klúbbfélögum að góðu kunnur. Kona hans er Ólína Jóna Bjarnadóttir. Jón Gunnar er boðinn velkominn í klúbbinn.

Lesa meira
 
Sigþór Jóhannesson forseti Rkl. Hafnarfjarðar ásamt Tryggva Pálssyni umdæmisstjóra.

Góð heimsókn umdæmisstjóra - 3.11.2011

Tryggvi Pálsson umdæmisstjóri Rótarýs fékk fulla athygli þegar hann ávarpaði félaga í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar í dag. Honum var fagnað með rótarýsöng úr hans klúbbi, söng eftir Björn Dagbjartsson við lag Friðriks Bjarnasonar. Kynning Tryggva var fremur óhefbundin og lagði hann meiri áherslu á að hvetja menn til dáða en að upplýsa um tölulegar staðreyndir um hreyfinguna. Var almenn ánægja með heimsókn umdæmisstjóra og hvetjandi fyrir rótarýfélaga.

Lesa meira
 
Jón Bergsson 80 ára

Jón Bergsson 80 ára - 3.11.2011

Félagi okkar Jón Bergsson, byggingarverkfræðingur, fagnaði 80 ára afmæli sínu 30. október sl. og færa klúbbfélagar honum bestu árnaðaróskir. Jón er sá almenni félagi sem lengst hefur verið í klúbbnum en hann gerðist félagi 1. júlí 1960. Það er gaman að geta þess að hann hefur vart látið sig vanta á nokkurn fund klúbbsins sl. ár. Jón var forseti klúbbsins 1971-1972 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir klúbbnum m.a. verið leiðsögumaður í mörgum ferðum. Eiginkona Jóns er Þórdís S. Sveinsdóttir.

 
Axel á enn möguleika á að verða ráðherra.

Rótarýfélagar tóku sig vel út á Alþingi - 2.11.2011

Frábær þátttaka var í borgarferð Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar sl. laugardag en að þessu sinni var ekki farið út fyrir landsteinana og ferðinni heitið í höfuðborgina. Það var Sigurður Einarsson arkitekt, félagi okkar í klúbbnum sem var leiðsögumaður okkar. Fyrst var nýi skáli Alþingis skoðaður en hann var hannaður af Sigurði og félögum hans í Batteríinu. Því næst lá leiðin í Alþingishúsið en sömu hönnuðir komu að endurbótum á húsinu sem nú er komið í sparibúninginn - að mestu.

Lesa meira
 

Haustþing á Alþingi og í Hörpu - 21.10.2011

laugardaginn 29. október

Haustferð klúbbsins verður skoðunarferð um Alþingi og Hörpu laugardaginn 29. október. Mæting er við Alþingishúsið kl. 10.20. 

Eftir heimsókn í Alþingi verður gengið yfir í Hörpu og húsið skoðað. Að endingu verður matur á veitingahúsinu Kolabrautinni á efstu hæði í Hörpu. Verð fyrir mat og skoðunargjald í Hörpu er 4.000 kr. á mann. Nánari upplýsingar gefur ferðanefnd.

Lesa meira
 

Hfj_haus_01
Þetta vefsvæði byggir á Eplica