Fréttir

Bjarni Þórðarson er látinn - 2/3/12

0508364799_Bjarni_Thordarson

Félagi okkar, Bjarni Þórðarson er látinn. Bjarni fæddist í Reykjavík 5. ágúst 1936 og gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 27.4.1979 fyrir starfsgreinina tryggingarstærðfræði og var alla tíð mjög virkur rótarýfélagi bæði í klúbbum okkar og í Rótarýumdæminu þar sem hann var umdæmisstjóri 2003-2004.

Lesa meira
 

Þorra blótað og sopið úr horni kvennanna - 1/27/12

Frá þorrablóti klúbbsins 2011

Þorrablót klúbbsins var haldið að venju í hádeginu í gær. Mæting var góð og áttu menn glaða stund og var vel tekið á þorramatnum.

Lesa meira
 

Nýr félagi - 1/9/12

Sigþór Jóhannesson forseti og Hafsteinn Ólafsson.

Hafsteinn Ólafsson framkvæmdastjóri Beitis ehf. í Vogum var tekinn í klúbbinn sl. fimmtudag. Hafsteinn er fæddur 11. febrúar 1952. Hann er uppalinn Hafnfirðingur en býr nú í Vogum þar sem þau hjónin, Hafsteinn og Þóra Bragadóttir reka saman fyrirtækið Beiti. Hann kemur í klúbbinn fyrir starfsgreinina ???

Er Hafsteinn boðinn velkominn í klúbbinn.

Lesa meira
 

Sigurbjörn Ó. Kristinsson er látinn - 12/29/11

Sigurbjörn Kristinsson

Heiðursfélagi okkar, Sigurbjörn Ó. Kristinsson málarameistari er látinn.

Sigurbjörn eða Bjössi eins og hann var kallaður í vinahópi, fæddist 5. mars 1924. Hann gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 3. júní 1971 fyrir starfsgreinina húsamálun. Hann var alla tíð tryggur félagi og lét sig sjaldan vanta á fundi og í ferðir. Félagar þekktu hann best fyrir listmálun en á fjölmörgum jólamerkjum klúbbsins eru myndir eftir hann.

Lesa meira
 

Gleðileg jól! - 12/24/11

Rótarýskógur Rkl. Hafnarfjarðar

Kæru rótarýfélagar og velunnarar Rótarý. Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar óskar ykkur gleðiríkra jóla og farsældar á nýju ári. Kærar þakkir fyrir ánægjulegt rótarýár.

 

Jón Gunnar flytur heim - 12/8/11

Jón Gunnar Stefánsson tekinn inn í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar

Jón Gunnar Stefánsson félagi í Rótarýklúbbi Keflavíkur hefur gengið í raðir Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar. Jón Gunnar hefur verið tíður gestur á fundum undanfarin ár og því klúbbfélögum að góðu kunnur. Kona hans er Ólína Jóna Bjarnadóttir. Jón Gunnar er boðinn velkominn í klúbbinn.

Lesa meira
 

Góð heimsókn umdæmisstjóra - 11/3/11

Sigþór Jóhannesson forseti Rkl. Hafnarfjarðar ásamt Tryggva Pálssyni umdæmisstjóra.

Tryggvi Pálsson umdæmisstjóri Rótarýs fékk fulla athygli þegar hann ávarpaði félaga í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar í dag. Honum var fagnað með rótarýsöng úr hans klúbbi, söng eftir Björn Dagbjartsson við lag Friðriks Bjarnasonar. Kynning Tryggva var fremur óhefbundin og lagði hann meiri áherslu á að hvetja menn til dáða en að upplýsa um tölulegar staðreyndir um hreyfinguna. Var almenn ánægja með heimsókn umdæmisstjóra og hvetjandi fyrir rótarýfélaga.

Lesa meira
 

Jón Bergsson 80 ára - 11/3/11

Jón Bergsson 80 ára

Félagi okkar Jón Bergsson, byggingarverkfræðingur, fagnaði 80 ára afmæli sínu 30. október sl. og færa klúbbfélagar honum bestu árnaðaróskir. Jón er sá almenni félagi sem lengst hefur verið í klúbbnum en hann gerðist félagi 1. júlí 1960. Það er gaman að geta þess að hann hefur vart látið sig vanta á nokkurn fund klúbbsins sl. ár. Jón var forseti klúbbsins 1971-1972 og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir klúbbnum m.a. verið leiðsögumaður í mörgum ferðum. Eiginkona Jóns er Þórdís S. Sveinsdóttir.

 

Rótarýfélagar tóku sig vel út á Alþingi - 11/2/11

Axel á enn möguleika á að verða ráðherra.

Frábær þátttaka var í borgarferð Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar sl. laugardag en að þessu sinni var ekki farið út fyrir landsteinana og ferðinni heitið í höfuðborgina. Það var Sigurður Einarsson arkitekt, félagi okkar í klúbbnum sem var leiðsögumaður okkar. Fyrst var nýi skáli Alþingis skoðaður en hann var hannaður af Sigurði og félögum hans í Batteríinu. Því næst lá leiðin í Alþingishúsið en sömu hönnuðir komu að endurbótum á húsinu sem nú er komið í sparibúninginn - að mestu.

Lesa meira
 

Haustþing á Alþingi og í Hörpu - 10/21/11

Haustferð klúbbsins verður skoðunarferð um Alþingi og Hörpu laugardaginn 29. október. Mæting er við Alþingishúsið kl. 10.20. 

Eftir heimsókn í Alþingi verður gengið yfir í Hörpu og húsið skoðað. Að endingu verður matur á veitingahúsinu Kolabrautinni á efstu hæði í Hörpu. Verð fyrir mat og skoðunargjald í Hörpu er 4.000 kr. á mann. Nánari upplýsingar gefur ferðanefnd.

Lesa meira
 

Sissel er nýr forseti Innerwheel Hafnarfjörður - 10/7/11

Sissel Einarsson

Sissel Einarsson hefur tekið við sem forseti Innerwheel klúbbs Hafnarfjarðar en það er klúbbur eiginkvenna rótarýfélaga. Sjá nánar um klúbbinn hér

Starfstímabilið er október til október og tekur hún við af Gerði S. Sigurðardóttur. Áhugasamir um klúbbinn geta haft samband við Sissel í síma 565 0935, sissel@internet.is

 

Dagskrá árshátíðarinnar - 9/28/11

Ari Eldjárn uppistandari mætir, Ari Jónsson og Finnbogi (Roof Tops og Júdas) koma og spila fyrir dansi og undir borðhaldi. Ferðasaga um Hellisheiði í léttum dúr - og allt verður undir góðri stjórn 3ja mínútna drottningarinnar okkar Ragnheiðar Bjarkar Guðmundsdóttur. Mæting kl. 18 á Hótel Hafnarfirði laugardaginn 8. október. Lesa meira
 

Teikningar Bjarna komnar á vefinn - 9/19/11

Jón Bergsson

Teikningar Bjarna Jónssonar, fyrrum félaga í klúbbnum af rótarýfélögunum hafa nú verið settar á vefinn. Bjarni teiknaði rótarýfélagana árið 1996 fyrir 50 ára afmælisbók klúbbsins. 10 árum síðar fékk þáverandi forseti Bjarna til að teikna þá sem bæst höfðu við í tilefni af 60 ára afmæli klúbbsins.

Lesa meira
 

Meðalaldur klúbbfélaga er 61,5 ár - 9/18/11

Frá vígslu á útsýnisskífunni á Ásfjalli

Meðalaldur klúbbfélaga í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar er 61,5 ár og hefur hækkað um 2,9 ár frá því árið 2005.

Meðal klúbbaldur félaga er 16,8 ár og hefur hækkað um 0,9 ár.

Meðalaldur þeirra 13 klúbbfélaga sem gengið hafa í klúbbinn síðustu 5 ár og eru enn í klúbbnum var 52,6 ár þegar þeir gengu í klúbbinn.

Lesa meira
 

Faðir Ragnheiðar Bjarkar er látinn - 9/15/11

Ragnheiður Björk missti föður sinn, Guðmund Albert Elíasson, sem lést á Hrafnistu 8. september sl. Rótarýfélagar votta Ragnheiði og fjölskyldu samúð sína.
 

Árshátíðin framundan!!! Taktu frá 8. október - 9/8/11

Hfj_gamlar_1Árshátíðin okkar verður haldin í Skútunni laugardaginn 8. október nk. Spennan er þegar farin að myndast og fyrir þá sem eru spenntir er hægt að upplýsa að hann Haukur ætlar að taka á móti okkur á Hótel Hafnarfjörður á undan og að skemmtinefndin er að undirbúa leyniatriði fjögurra rótarýfélaga. Skráning er hafin og ekki gleyma að láta vita af þessu heima.  - Nánar síðar.

(úr myndasafni klúbbsins)

 

Klúbblög aðlöguð að Grundvallarlögum Rótarý - 9/1/11

Á klúbbþingi í dag voru kynntar örfáar breytingar á lögum klúbbsins til samræmis við Grundvallarlög Rótarý. Breytingarnar voru samþykktar á fundi stjórnar 29. ágúst sl. Á þinginu voru einnig umræður um fyrirkomulag félagsgjalda og hvað ætti að vera innifalið. Lesa meira
 

Hálfnuð yfir Bandaríkin - 8/29/11

Á hjólaferð um USA
Ferð Sigurjóns Péturssonar, félaga okkar, og Þóru Hrannar konu hans hjólandi þvert yfir Bandaríkin gengur að óskum. Þau hjóla í dag frá Hico í Texas til Eastland sem er um 104 km leið. Hitinn á leið til Hico var um 45°C og þau þurftu að hjóla 122 km leið sem hækkaði um 620 m! Fylgist með þeim á Facebook síðu þeirra hér.
 

Hópur frá Ástralíu kemur í september - 8/26/11

Starfshópaskipti að þessu sinni eru við umdæmi  9780 í Ástralíu. 5 manna hópur er væntanlegur til landsins 24. september og dvelur hér til 22. október.

Lesa meira
 

Klúbbþing fimmtudaginn 1. september kl. 12.15 - 8/25/11

Ákveðið hefur verið að hafa klúbbþing á venjulegum fundartíma í hádeginu fimmtudaginn 1. september kl. 12.15. Skv. upplýsingum forseta verður á dagskrá hugmyndir að breytingum á félagsgjaldi í kjölfar umræðu nýverið og nauðsynlegar breytingar á lögum félagsins til að aðlaga þau lögum RI. Auk þess verður pláss fyrir önnur mál.

 

Hlaupahraðinn umfram væntingar - 8/21/11

maraþon, Guðni, rótarýmerki

Alls söfnuðust 233 þúsund kr. í áheitum hjá þeim 8 sem hlupu til styrktar Rótarý á Íslandi og baráttunni gegn lömunarveiki. Guðni Gíslason safnaði mest, 137.000 kr. Næst mest áheit fékk Kári Steinn Karlsson, kr. 61.000 kr. og Jóhanna Björg Hansen var með þriðju hæstu áheitin, 11.500 kr. Það er ekki hægt að neita því að vonast hafði verið eftir hærri upphæðum en þessum framlögum ber þó að fagna og þeim rótarýfélögum og öðrum sem lögðu lið. Hlaupararnir stóðu við sitt og gott betur, Kári Steinn sigraði með yfirburðum og sett nýtt Íslandsmet og Guðni hljóp á um 6 mínútna betri tíma en hann stefndi að. Sjá má tíma keppendanna hér að neðan:

Lesa meira
 

Áhugaverð lesning um rekstur klúbbs - 8/13/11

Club leadership plan
Síða Rotary International, http://www.rotary.org/ er mjö lifandi síða og þar er mikið af fróðleik. Þar má m.a. finna ýmsan fróðleik sem nota má til að byggja upp og viðhalda góðu klúbbsatarfi. Hér má finna áhugaverðar ábendingar um stjórnun rótarýklúbbs. http://www.rotary.org/en/Members/RunningAClub/ClubLeaders/Pages/ridefault.aspx
 

Móðir Jóhannesar Pálma er látin - 8/10/11

Sigríður Jóhannesdóttir, móðir félaga okkar, Jóhannesar Pálma Hinrikssonar lést sunnudaginn 31. júlí sl. Rótarýfélagar votta Pálma og fjölskyldu hans samúðar.
 

Klúbbþing 1. september - 8/10/11

Klúbbþing verður haldið fimmtudaginn 1. september um kvöldið og eru Rótarýfélagar hvattir til að taka tímann frá. Nánari upplýsingar um þingið kemur frá stjórn klúbbsins.
 

Guðni hleypur 1/2 maraþon til styrktar Polio Plus - 8/10/11

Guðni áheit, Polio Plus
Nú stendur yfir átak til að ljúka baráttunni við lömunarveiki í heiminum en Rótarýhreyfingin hefur lagt gríðarlegt fjármagn og vinnu til að svo megi verða. Nú Polio Plus nefnd umdæmisins lagði til að rótarýfélagar hlypu í Reykjavíkurmarþoninu og söfnuðu áheitum. Guðni Gíslason, félagi í klúbbnum, tók þessari áskorun og hefur þegar safnað 50 þúsund kr. - Ert þú búin(n) að leggja baráttunni lið? Lesa meira
 

Sigurjón hjólar þvert yfir Bandaríkin - 8/10/11

Félagi okkar, Sigurjón Pétursson ásamt konu sinni hjóla nú þvert yfir Bandaríkin. Hægt er að fylgjast með ferðum þeirra á Facebook síðu þeirra http://www.facebook.com/pages/IcelandAcrossAmerica-2011/128674237218966 Lesa meira
 

Rótarý á Facebook - 8/10/11

Augl_facebook

Rótarý á Íslandi er að sjálfsögðu með Facebook síðu www.facebook.com/rotary.island Tengist endilega síðunni og fylgist með ýmsu sem er að gerast í rótarýhreyfingunni, hér heima og erlendis. Hvetjið endilega rótarýfélaga til að tengjast síðunni og ekki síst skiptinema, yngri sem eldri.

 

Fundir falla niður - 7/17/11

Reglulegir fundir Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar falla niður 21. og 28. júlí 2011.

Lesa meira
 

Merkisteinn vígður í skógræktarreitnum - 7/8/11

Miðvikurdaginn 6. júlí sl. var vígður merkisteinn við skógræktarreit klúbbsins við Klifsholt. Lesa meira
 

Björn B. Líndal er látinn - 12/21/10

Björn Líndal

Björn B. Líndal, félagi í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar lést 14. desember 2010

Lesa meira
 

Fundur 11. nóvember - 11/11/10

Fundurinn var í umsjón stjórnar klúbbsins og á dagskrá var stjórnarkjör. Steingrímur Guðjónsson var kjörinn verðandi forseti, Kjartan Jóhannsson ritari, Jóhannes Einarsson gjaldkeri og Reynir Guðnason stallari.

Fulltrúi Rotaractklúbbsins Geysir kom á fundinn og sagði frá starfsemi Rotaract á Íslandi, en Geysir er eini klúbburinn á Íslandi, stofnaður fyrir tæpum tveimur árum. Hann sagði frá ferð til Indlands sem félagar úr Rotaract og Rótarýklúbbum ætla að fara í febrúar. Tilgangur ferðarinnar er að taka þátt í samstarfsverkefni Rotary International, Unicef og fleiri aðila um útrýmingu á lömunarveiki í heiminum.

 

Fundur 4. nóvember - 11/4/10

Umdæmisstjóri Margrét Friðriksdóttir kom í heimsókn ásamt eiginmanni sínum Eyvindi Albertssyni. Fundurinn var í höndum stjórnar klúbbsins.
 

Fundur 28. október - 10/29/10

Fundurinn var í umsjá stjórnar og fundarefni var tilnefning til stjórnarkjörs.

 

Fundur 21. október - 10/21/10

Fyrirlesari var Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri hjá Virk endurhæfingasjóði. Sagði hún frá starfsemi fyrirtækisins. Fundurinn var í umsjón landgræðslunefndar.
 

Fundur 14. október - 10/21/10

Fyrirlesari var Jón Ásbjörnsson sem kynnti starfsemi Íslandsstofu. Fundurinn var í umsjón Æskulýðsnefndar.
 

Fundur 7. október - 10/8/10

Fundarefni í umsjón Þjóðmálanefndar. Fyrirlesari var Bjarki Friis jöklafræðingur sem fjallaði um Sirius, eftirlitssveitir Dana á Grænlandi.

 

Fundur 30. september - 10/1/10

Fundurinn var í umsjá Starfsþjónustunefndar. Fyrirlesari var Róbert Lee Tómasson hjúkrunarfræðingur og fjallaði hann um notkun á hjartastuðtækjum.
 

Árshátíð í Skútunni þann 9. október - 9/26/10

Árshátíð Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar verður haldin í Skútunni að Hólshrauni 3.
Mæting klukkan 18:00 að Trönuhrauni 1 hjá Batteríinu - arkítektum ehf.
Borðhald hefst hefst í Skútunni klukkan 19:00.
Veislustjóri verður Pétur Óskarsson.
Magnús Kjartansson mun sjá um dinnertónlist og einnig leika fyrir dansi.

Matseðill
Forréttur:    Humarsalat með graskersfræum, vorlauk og melónu.
Aðalréttur:  Lambafille með kartöfluturni, gulrótum, sellerý, smámaís og villisveppasósu.
Eftirréttur:   Frönsk súkkulaðikaka með vanilluís.

Miðaverð kr.  7.000.

 

Fundur 23. september 2010 - 9/26/10

Fundurinn var í umsjón Klúbbþjónustunefndar. Fyrirlesari dagsins var Petrína Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla og sagði hún frá starfsemi samtakanna.
 

Fundur 16. september 2010 - 9/16/10

Hjólaferð Sigurjóns PéturssonarFundurinn var í umsjá Ferðanefndar undir stjórn Sigurjóns Péturssonar. Sigurjón sagði frá reiðhjólaferð í kringum Ísland sem hann og eiginkona hans, Þóra Hrönn Njálsdóttir fóru síðastliðið sumar.                                                                   

 

Fundur 9. september 2010 - 9/16/10

Fundarstaður Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar

Fundurinn var í umsjá Alþjóðamálanefndar sem Hjalti Jóhannsson stýrir. Fyrirlesari fundarins var Gissur Kristinsson vínráðgjafi hjá ÁTVR og ræddi hann um þróun áfengisdrykkju Íslendinga á liðnum áratug.

 

Fundur 2. september 2010 - 9/16/10

FuFundarstaður Rótarýklúbbs Hafnarfjarðarndurinn var í umsjá Öldrunarnefndar undir forystu Sigurðar Hallgrímssonar. Fyrirlesarar voru Kristín Pálsdóttir hjúkrunarforstjóri á Sólvangi og Inga Valgerður Kristinsdóttir. Kristín nefndi erindi sitt: Heilsugæslan og eldri  borgarar og Inga Valgerður ræddi um heilsueflandi heimsóknir frá heilsugæslunni Sólvangi og heimahjúkrun.

 

Klúbbþing 26. ágúst 2010 - 9/16/10

Klúbbþingið var í umsjón stjórnar Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar og Rótarýfræðslunefnd sem Guðni Gíslason stýrir. Umfjöllunarefni klúbbþingsins var Hefðanefnd og verkefni hennar. Kristján Stefánsson er formaður nefndarinnar og kynnti hann helstu verkefni hennar.
 

Fundur 19. ágúst 2010 - 9/16/10

Fundurinn var í umsjá Landgræðslunefndar sem Sigurður Einarsson er formaður fyrir. Steinar Björgvinsson garðyrkju- og skógfræðingur fræddi fundarmenn um markaðinn á Íslandi fyrir afskornar trjágreinar og sprota til skreytinga og möguleika íslenskrar framleiðslu.
 

Fundur 12. ágúst 2010 - 9/16/10

Fundurinn var í umsjá Æskulýðsnefndar sem Guðmundur Rúnar Ólafsson er formaður fyrir. Fyrirlesari var Halldór Kristjánsson verkfræðingur og nefndi hann erindi sitt: Nútímatækni í myndavélum og úrvinnslu mynda.
 

Fundur 5. ágúst 2010 - 9/16/10

Fundurinn var í umsjá Félaganefndar undir stjórn Sigurþórs Aðalsteinssonar. Fundarefni: Torfkofar - hvað? Vanmetin verkþekking. Högni Sigurþórsson fjallaði um endurgerð gamalla torfhúsa.

 

Fundur 22. júlí 2010 - 9/16/10

Fundurinn var í umsjá Þjóðmálanefndar sem Skúli G. Valtýsson stýrir. Fyrirlesari fundarins var Ármann Jakobsson dósent við Háskóla Íslands. Fundarefni: Áhugi annarra þjóða á miðaldabókmenntum okkar og samskipti við erlenda fræðimenn.
 

Fundur 15. júlí 2010 - 9/16/10

Fundurinn var í umsjá Klúbbþjónustunefndar. Nefndinni stýrir Almar Grímsson. Fyrirlesari fundarins var Halldór Árnason hagfræðingur. Fundarefni: Skipulagsbreytinga er þörf hjá hinu opinbera.

 

Fundur 8. júlí 2010 - 9/16/10

Fundurinn var í umsjá Starfsþjónustunefndar sem Gylfi Sigurðsson stýrir. Fyrirlesari dagsins var Embla Ágústsdóttir og ræddi hún um fötlun sína og hvernig hún tekst á við lífið.

 

Jóhannes Pálmi sigurvegari í höggleik á golfmóti Rótarý 2010 - 7/19/10

IMG00008

Golfmótið fór fram 16 júlí sl. í miðjarðarhafs loftslagi á Hamarsvelli í Borgarnesi. Keppt var bæði í höggleik þar sem fæst högg vinna og punktakeppni þar sem forgjöf leikmanna jafnar litla og stóra, konur og karla, en tveir efstu telja frá hverjum Rótarý klúbbi. Punktakeppnina sigraði Rótarýklúbburinn Borgir en Rótarýklúbbur Hafrnarfjarðar hafnaði í öðru sæti, en eitt högg skildi klúbbana að. Á myndinni er okkar maður með vinninga dagsins.

Lesa meira
 

Stjórnarskipti - 7/8/10

Stjórnarskiptafundur var haldinn 7. júlí sl. þar sem Sigþór Jóhannesson tók við forsetakeðjunni úr hendi Hjördísar Guðbjörnsdóttur og ný stjórn tók til starfa. Lesa meira
 

Fékk Paul Harris viðurkenningu - 9/9/09

Eema_harris

Á hátíðarkvöldverði á fjölþjóða æskulýðsráðstefnunni EEMA heiðraði umdæmisstjóri Jón Ásgeir Jónsson, Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar og formann undirbúningsnefndar ráðstefnunnar, Paul Harris orðu með þremur steinum.

Lesa meira
 

Pétur Þorbjörnsson er látinn - 7/5/09

Þann 30. júní sl. lést Pétur Þorbjörnsson. Pétur, sem var fæddur 6. október 1922, gekk í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 21. desember 1972 en þá rak hann verslunina Málm. Hann var einn af heiðursfélögum klúbbsins frá 2. júlí 1998. Eftirlifandi eiginkona hans er Valgerður Sigurðardóttir. Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar minnist Pétri með virðingu og söknuði og færir Valgerði og fjölskyldu samúðaróskir.

 

Tveir klúbbfélagar fengu viðurkenningu á umdæmisþingi Rótarý - 6/7/09

Á umdæmisþingi Íslenska Rótarýumdæmisins sem haldið var á Hótel Sögu í gær var tveimur félögum úr Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar veitt Paul Harris viðkurkenning. Guðni Gíslason fékk Paul Harris orðu með einum safír fyrir störf sín að vefsíðu og félagakerfi Rótarýumdæmisins og Hallfríður Helgadóttir fékk Paul Harris orðu fyrir störf sín að æskulýðsmálum.
Lesa meira
 

Vel heppnuð Stokkhólmsferð á enda - 4/18/09

Ferðahópur Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar til Stokkhólms 2009

Nú var að ljúka síðasta heila degi okkar hér í Stokkhólmi og um hádegisbil á morgun verður haldið heima á leið. Hópurinn fór saman í Óperukjallarann (sem var á annarri hæð) og borðaði saman fína máltíð og fólk skemmti sér konunglega. Sumir meira en aðrir enda var "útsýnið" ekki eins hjá öllum. Myndir af því útsýni verður ekki sýnt hér.

Lesa meira
 

Kalt í Stokkhólmi á degi kirsuberjatrésins - 4/18/09

Sultardropar sjást nú á rótarýfélögum sem þramma um Stokkhólm í dag. Einstaka snjókorn svífur til jarðar en sólin vermir ekki síður enkaffihúsin. Allt gengur vel og hópurin borðar saman í Óperukjallaranum í kvöld en svo er haldið heim á leið á morgu.

Lesa meira
 

Eftir tvo daga í Stokkhólmi - 4/17/09

Nú erum við búin að vera tvo daga í Stokkhólmi og ferðin hefur gegnið mjög vel. Búið er að heimsækja sendiherrahjónin, fara í skoðunarferð og þramma um borgina.

Lesa meira
 

Klúbbferð til Stokkhólms í apríl - 2/25/09

Nú er ákveðið að farið verður í hópferð til Stokkhólms 16.-19. apríl nk. Ferðanefnd vinnur nú að lokaundirbúningi ferðarinnar en gist verður á Scandic Sergel Plaza hótelinu, í hjarta Stokkhólms við Sergel torgið.

Lesa meira
 

Danirnir koma ekki - 1/21/09

Breyting hefur orðið hjá dönsku rótarýfélögunum sem koma ekki á þorrablót klúbbsins sem sérstaklega hafði verið fært til vegna þeirra.
 

Danskir rótarýfélagar í heimsókn á þorrablóti - 1/17/09

Þorrabót Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar verður haldið fimmtudaginn 29. janúar í Turninum. Húsið verður opnað kl. 19

Lesa meira
 

Ný framtíðarsýn Rótarýsjóðsins - 1/14/09

Framtíðarnefnd Rótarýsjóðsins kynnir nýja framtíðarsýn sjóðsins þar sem nýjar áherslur eru lagðar og uppbygging endurskoðuð. Skoðið nánar hér.

 

Mætingar ekki skráðar í félagakerfið - 12/6/08

Skv. ákvörðun stjórnar klúbbsins verða mætingar frá 1. júlí sl. ekki færðar inn í félagakerfið fyrr en eftir áramót. Því geta félagar ekki séð mætingu sína nema mætingu sem skráð er vegna heimsókna í aðra klúbba eða nefndir sem skrá mætingu í félagakerfið. Að sama skapi er dagskrá funda ekki skráð í kerfið en allir fundir starfsársins hafa verið skráðir.

Þeir sem hafa ekki fengið eða hafa gleymt lykilorði að félagakerfinu er bent á að snúa sér til ritara.

 

Hátíðartónleikar Rótarý - 11/28/08

Miðaverð er 3.500 kr. Mun sala þeirra fara fram á netinu. Smellið hér.  Þess er vænst að Rótarýfélagar fjölmenni nú sem fyrr ásamt mökum sínum og gestum - og fylli húsið báða dagana enda mun hátíðleikinn og gleði okkar góða félagsskapar ríkja  á báðum tónleikunum. Lesa meira
 

Vel heppnuð árshátíð - 10/14/08

Það er mál manna að vel hafi tekist til með hátíðina enda hún afar vel sótt en 90 félagar og gestir mættu á fagnaðinn. Lesa meira
 

Allir með lykilorð - 9/17/08

Nú eiga allir klúbbfélagar að hafa fengið lykilorð inn á nýja Rótarývefinn og þeir sem ekki hafa fengið slíkt snúi sér til ritara klúbbsins. Hver klúbbfélagi ber ábyrgð á því að uppfæra upplýsingar um sjálfan sig.

Lesa meira
 

Styrkur Tónlistarsjóðs Rótarý - 9/7/08

Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrk.

Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms.

Styrkurinn verður veittur í janúar 2009 og verður að upphæð kr. 500.000.

Umsóknarfrestur er til 10. október næstkomandi

Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Netfang: rotary@simnet.is.

 

Ný heimasíða tekur við af 8 ára gamalli síðu - 8/29/08

Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hefur nú fengið nýja heimasíðu eins og allir rótarýklúbbar landsins. Síða klúbbsins er umfangsmikil, með miklum upplýsingum auk þess sem finna mátti á gömlu síðunni. Lesa meira
 

Rótarýfundur í skála Norðmanna - 7/21/08

Sl. fimmtudag Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar reglulegan fund sinn í Bjálkahúsi Félags Norðmanna á fallegum stað í Heiðmörk. Hefð er að verða til í klúbbnum að hittast þarna einu sinni á sumri og hefur það verið tilhlökkunarefni undanfarin sjö ár. Lesa meira
 

Jónsmessuferð á Snæfellsnes - 21. júní - 5/26/08

Takið frá 21. júní, því þá fara klúbbfélagar ásamt mökum í jónsmessuferð á Snæfellsnes. Mundu að skrá þig í ferðina hjá Hjalta, Hjördísi eða Sigurþór. Lesa meira
 

Skipulagsmál rædd á fimmtudag - 3/26/08

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, doktorsnemi í skipulagshagfræði við Oxfordháskóla flytur fyrirlestur á fundi okkar á fimmtudaginn (og verður í Bæjarbíói kl. 20) um varðveislu gamalla húsa og hverfa.

Lesa meira
 

Nýr fundarstaður - 3/19/08

Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hefur fengið nýjan glæsilegan fundarstað en fundir klúbbsins verða frá og með 3. apríl í Turninum, 7. hæð í vestari turninum í verslunarmiðstöðinni Firði, Fjarðargötu 13. Lesa meira
 

Nýir félagar - 2/29/08

Inntaka0802

Tveir nýir félagar bættust við í hópinn í gær þeir Axel Valdimar Gunnlaugsson, upplýsingatækniarkitekt hjá Símanum og Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viators.

Lesa meira
 

Paul Harris félagar - 2/7/08

Rhfj-traustiÁ jólafundi klúbbsins voru þrír félagar heiðraðir með Paul Harris orðu. Lesa meira
 

Skúli Þórsson er látinn - 1/21/08

Félagi okkar, Skúli Þórsson er fallinn frá, langt um aldur fram. Skúli fæddist 31. maí 1943 og lést síðla dags 20. janúr sl. Hann var tekinn inn í Rótarýklúbb Hafnarfjarðar 5. desember 1974. Lesa meira
 

Útifundur við Norska bústaðinn nr 2 - 8/10/06

 

Nýir félagar nr 2 - 12/1/05

 

Vitaferð - 4/21/05

 

Börnin á Rótarýfundi nr 2 - 1/11/04

 

Andlát - 12/8/03

 

Andlát - 11/2/03

 

Julie Kveður nr 2 - 6/19/03

 

I Gimli - 8/6/02

 




Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar

Fundarstaður

Fjarðargötu 13, Turninn, 7. hæð Firði. (kort)
Fundartími: Fimmtudagur 12.15

----------------------------------------------
Kennitala : 5711751429
Netfang : hafnarfjordur@rotary.is
Veffang : www.rotary.is/hafnarfjordur
Fjöldi félaga í klúbbi : 77

 

Úr myndasafni klúbbsins

  • Frá fundi Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar í Norska bústaðnum

    Ýmsar óflokkaðar myndir úr starfi klúbbsins


Hfj_haus_01
Þetta vefsvæði byggir á Eplica