Á fundi Rótarýklúbbs Reykjavíkur miðvikudaginn 1. febrúar 2012 flutti Hugi Ólafsson skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu erindi um loftslagsmál og viðleitni þjóða heims til að draga úr hlýnun andrúmsloftsins af manna völdum og stöðu Íslands í því samhengi.
Á stjórnarfundi hinn 6. apríl sl var einróma samþykkt að leggja til við klúbbfélaga að Jón H. Bergs, Magnús Magnússon og Hjalti Geir Kristjánsson yrðu kjörnir heiðursfélagar Rótaryklúbbs Reykjavíkur og bættust í hóp heiðursfélaga okkar ásamt þeim Haraldi Sveinssyni og Jónasi H. Haralz.

Jón H. Bergs varð félagi í Rótaryklúbbi Reykjavíkur þann 22. apríl 1959, hann var forseti klúbbsins starfsárið 1971-1972 og hlaut Paul Harris viðurkenningu klúbbsins 14.apríl 1993.
Magnús Magnússon varð félagi í Rótaryklúbbi Reykjavíkur þann 7. mars 1962, hann var forseti klúbbsins starfsárið 1978-1979 og hlaut Pall Harris viðurkenningu klúbbsins 16.apríl 1994.
Hjalti Geir Kristjánsson varð félagi í Rótaryklúbbi Reykjavíkur þann 24. júní 1964, hann var forseti klúbbsins starfsárið 1970-1971 og hlaut Paul Harris viðurkenningu klúbbsins 3. maí 1995.
Í gær afhenti Rótarýklúbbur
Reykjavíkur fulltrúum Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur kr. 200.000 sem söfnuðust meðal félaga í síðustu viku. Stjórn Rótaryklúbbs Reykjavíkur ákvað í lok nóvember að hefja söfnun meðal félagsmanna til styrktar því fórnfúsa og þakkláta starfi sem Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur sinnir meðal íbúa Reykjavíkur, ekki síst á jólahátíðum. Í söfnuninni meðal félagsmanna sem fram fór í síðustu viku söfnuðust alls krónur 200.000. Rótaryklúbbur Reykjavíkur óskar Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur alls hins besta í störfum sínum um ókomna tíð.
Lesa meiraStórn Rótaryklúbbs Reykjavíkur tilnefndi
nýlega tvo nýja Paul Harris félaga, þau Sigríði Á. Snævarr og Sigurð Guðmundsson. Þau hafa bæði verið mjög virk í starfsemi klúbbsins undafarin ár og stutt dyggilega við hugsjónir og framgang Rótaryhreyfingarinnar. Sigurður var forseti Rótaryklúbbs Reykjavíkur starfsárið 2005-2006 og Sigríður var forseti klúbbsins starfsárið 2006-2007, en hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti hjá Rótary Reykjavík í rúmlega 75 ára sögu klúbbsins.
Rótarýklúbbur Reykjavíkur hefur frá árinu 2007 stutt við langskólanám 4 einstaklinga í Monkey Bay, Malawi. Á þessu svæði hafa Íslendingar mjög látið til sín taka og hafa verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malawi frá upphafi verið nærfellt öll í Monkey Bay. Fátækt á þessu svæði er mikil, og afleiðingar hennar enn meiri.
Lesa meiraFyrstu tilraunir til stofnunar rótarýklúbbs hér á landi munu hafa verið gerðar árið 1920 eða 1921 frá Rótarýklúbbnum í Hull í Englandi. Voru tilmæli um það borin upp við Asgrím Sigfússon útgerðarmann í Hafnarfirði. En hvorttveggja var, að því var lítt fylgt eftir frá Hull og Ásgrímur taldi öll tormerki á að stofna klúbb í Hafnarfirði. Þar voru hvorki samkomuhús né veitingastaðir til. Það kom hins vegar í hlut Hafnfirðings að standa að stofnun fyrsta klúbbsins 1934 - í Reykjavík.
Lesa meira