Lög klúbbsins

Sérlög Rótarýklúbbs Reykjavíkur-Árbær

Lög klúbbsins á Word skjali og á PDF skjali

 

1.0         Nafn og klúbbsvæði

Klúbburinn heitir Rótarýklúbburinn Reykjavík-Árbær-Grafarvogur. Klúbbsvæði hans er austan Elliðaár í Reykjavík.

 

2.0         Lög klúbbsins

Auk þessara sérlaga gilda grundvallarlög Alþjóðasambands rótarýmanna (Constitutution of Rotary International) og sérlög þess (By-laws) fyrir klúbbinn.

 

3.0         Aðild klúbbsins að rótarýsamtökum

Klúbburinn á aðild að Alþjóðasambandi rótarýmanna (Rotary International) Rótarýsjóðnum (Rotary Foundatrion) og íslenska rótarýumdæminu (umdæmi nr. 136 í Alþj.samb. rótarýmanna) og öðrum samtökum rótarýmanna eftir ákvörðun klúbbsins.

 

4.0    Markmið

Markmið rótarýhreyfingarinnar er að glæða og efla þjónustuhugsjónina grundvöll verðugs framtaks og sérstaklega glæða og efla:

  • Viðkynningu sem veitir tækifæri til þjónustu. 
  • Góða siðareglu í viðskiptum og störfum, viðurkenningu á gildi allra nytsamra starfa og virðingu hvers rótarýfélaga fyrir atvinnu sinni sem leið til að samfélaginu.
  • Beiting rótarýhugsjónarinnar í einkalífi, atvinnu og þjóðfélagsstarfi hvers rótarýfélaga.
  • Skilning, góðvild og frið milli þjóða með alþjóðafélagsskap starfandi manna sem þjónustuhugsjónin tengir saman.

 

5.0    Skipan og kosning stjórnar

5.1.    Stjórn klúbbsins skipa 6 félagar. Einn er kosinn til tveggja ára sem viðtakandi forseti fyrir starfsárið en verður forseti seinna starfsárið. Til eins árs eru kosnir: varaforseti, ritari, gjaldkeri og stallari. Viðtakandi forseti, varaforseti, ritari, gjaldkeri og stallari skulu kosnir hver um sig í nefndri röð. Jafnframt er stjórn klúbbsins heimilt að láta kjósa varastjórn með þeim hætti sem hún ákveður.

 

5.2.   Á fyrsta fastafundi í nóvember skal fara fram tilnefning vegna stjórnarkjörs. Tilnefningin skal vera skrifleg.

 

5.3.  Kjörgengir í stjórn klúbbsins eru allir virkir félagar (active members) meðvirkir félagar (additional active members) aldvirkir félagar (senior active members) og fyrrvirkir félagar (past service members)

 

5.4.     Á sama fundi og stjórn er kosin skal kjósa 2 endurskoðendur reikninga fyrir næsta starfsár og einn varaendurskoðanda eftir tillögu forseta.

 

5.5.     Forfallist stjórnarmaður á kjörtímabilinu setur stjórn mann í hans stað hafi varastjórn ekki verið kjörin.

 

5.6.     Stjórnarskipti skulu fara fram á fyrsta fastafundi í júlí sem er aðalfundur klúbbsins.

 

6.0.    Stjórn klúbbmála

6.1.    Klúbbfundur þar sem að a.m.k. 2/3 fundarskyldra félaga eru á fundi er ályktunarfær í öllum málum. Meirihluti atkvæða ræður í öllum málum nema annað sé ákveðið í lögum.

 

6.2.1.1.   Stjórn allra mála klúbbsins er að öðru leyti í höndum stjórnar.

 

6.3.     Stjórnin skal í byrjun hvers starfsárs semja fjárhagsáætlun fyrir það ár og leggja hana fyrir klúbbfund til samþykkis eigi síðar en á síðasta fastafundi í júlí. Gjöld klúbbsins mega ekki fara fram úr þeirri áætlun nema samþykki klúbbfundar komi til, sjá einnig 9.2.

 

6.4.     Mál eða tillögur sem fela í sér skuldbindingar fyrir klúbbinn skulu ekki bornar fram á fundi fyrr en stjórn klúbbsins hefur fjallað um þær. Komi slík mál fyrir á klúbbfundi án vitundar stjórnar skal umræðulaust vísa því til hennar. Að lokinni athugun skal stjórnin leggja málið fyrir klúbbfund og ræður þá meirihluti atkvæða úrslitum þess.

 

7.0       Verkaskipting stjórnar

7.1.      Forseti stjórnar fundum klúbbs og stjórnar. Hann er málsvari klúbbsins og gegnir öllum forsetaskyldum skv. lögum og venjum.

 

7.2        Varaforseti gegnir skyldum forseta í fjarveru hans. Ef hann er einnig fjarri gegnir viðtakandi forseti þeim og síðan forseti fyrra árs o.f.frv. Varaforseti er jafnframt dagskrárstjóri þ.e. hann hefur umsjón með fundarefni.

 

7.3        Ritari annast bréfaskriftir heldur félagaskrá, gjörðarbók klúbbfunda og stjórnarfunda, gerir skýrslu um fundarsókn hvers félaga. Hann sendir öðrum rótarýklúbbum tilkynningu ef einhver félagi þeirra situr fundi klúbbsins. Stjórnin getur ákveðið að hann semji og sendi mánaðarbréf til klúbbfélaga og annarra ef ástæða þykir til. Hann semur og sendir svæðisskrifstofu RI. í Stokkhólmi það sem hér segir: Misserisskýrslu 1. júlí og 1. janúar. Breytingar á félagaskrá og starfsgreinaskrá. Tilkynningu um stjórnarkjör o.fl. sem R.I. kann að mæla fyrir um.

 

7.4.      Gjaldkeri innheimtir allar tekjur klúbbsins og greiðir alla reikninga sem forseti áritar. Hann gerir reikningsskil á aðalfundi og þegar stjórnin óskar þess. Reikningsárið er 1. júlí til 30 júní. Að öðru leyti skal gjaldkeri leysa af hendi öll þau störf sem skv. lögum og venju varða embætti hans.

 

7.5.      Stallari sér um að vel sé búið að félögum á fundum. Hann annast móttöku gesta. Hann varðveitir og skráir muni í eigu klúbbsins og annast þau störf önnur er starfi hans fylgja og forseti felur honum.

 

8.0       Fundir

8.1.     Fastafundi klúbbsins skal halda á hverjum fimmtudegi kl. 18.15 þó getur stjórn þegar nauðsyn krefur eða gildar ástæður eru til fært fastafundi til annars tíma eða annars dags í sömu viku eða jafnvel fellt hann niður. Slíkar breytingar skal tilkynna félögum í tæka tíð.

 

8.2.      Fyrsti fastafundur í júlímánuði er aðalfundur klúbbsins. Flytur fráfarandi forseti þá ársskýrslu og gjaldkeri leggur fram til samþykktar endurskoðaðan ársreikning, en stallari gefur skýrslu um muni í eigu klúbbsins. Eintak af skýrslum og  ársreikningum skal ritari varðveita.

 

8.3.       Forseti ákveður og boðar til stjórnarfunda. Auk þess skal halda stjórnarfund ef 2 stjórnarmenn óska þess. Stjórnarfundir eru ályktunarfærir þegar a.m.k. 3 eru á fundi. Afl atkvæða ræður úrslitum. Atkvæði forseta sker úr ef atkvæði eru jöfn.

 

9.0       Klúbbgjöld

9.1       Inntökugjald er 1/3 af árgjaldi og greiðist við inngöngu í klúbbinn. Þeir sem hafa áður verið rótarýfélagar þurfa ekki að greiða inntökugjaldið.

 

9.2        Árgjald skal ákveðið við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

 

9.3.       Gjöld til Rótarýsjóðsins skulu vera frjáls framlög.

 

10.0       Nefndir

10.1.      Forseti skal að fengnu samþykki annarra stjórnarmanna skipa þessar 4 aðalnefndir í byrjun starfsárs:

Klúbbþjónustunefnd (club service committee)

Starfsþjónustunefnd (vocational service committee)

Þjóðmálanefnd (community service committee)

Alþjóðanefnd (international service committee)

 

Ennfremur skal forseti að fengnu samþykki annarra stjórnarmanna skipa nefndir til að sjá um einstaka þætti klúbbþjónustu, starfsþjónustu, þjóðmálaþjónustu og alþjóðaþjónustu eftir því sem hann telur þörf á. Nefndir skulu skipaðar 3 eða 5 mönnum eftir ákvörðun stjórnar nema öðruvísi sé mælt fyrir um einstakar nefndir. Að jafnaði skulu nefndir skipaðar til eins árs. Þegar ástæða þykir til að tryggja samhengi í störfum frá ári til árs skal skipa einn eða fleiri nefndarmanna til 2 ára eða endurskipa 1 eða fleiri nefndarmanna.

 

10.2.    Klúbbþjónustunefnd: ber ábyrgð á á klúbbþjónustustörfum og skal samræma störf þeirra nefnda sem skipaðar eru til að fjalla um einstaka þætti klúbbþjónustu en til þess skulu skipaðar eftirgreindar undirnefndir ef stjórn telur þörf á hverju sinni; starfsgreinanefnd, félagavalsnefnd, fundarsóknarnefnd, gestanefnd, skemmtinefnd, laganefnd.

10.2.1.1   Starfsgreinanefnd skal gera skrá yfir þær starfsgreinar í bæjarfélaginu sem talið er rétt að geti átt fulltrúa í klúbbnum svo og hverjar þeirra eigi þar   fulltrúa. Við gerð starfsgreinarskrárinnar og endurskoðun skal farið eftir reglum og leiðbeiningum frá RI. Ef mikilsverðar starfsgreinar eiga ekki fulltrúa í klúbbnum skal nefndin benda stjórninni á mikilvægi þess að fulltrúi fáist fyrir þær. Nefndin skal endurskoða starfsgreinaskrána við og við til þess að ganga úr skugga um að á henni séu ætíð mikilsverðustu atvinnugreinar á klúbbsvæðinu en ráðgast skal við stjórn klúbbsins um allt sem máli skiptir í því sambandi.

10.2.1.2     Félagavalsnefnd fjallar um allar tillögur um nýja félaga. Hún kynnir sér gaumgæfilega hvort þeir njóti álits og trausts í störfum sínum og ennfremur hvort þeir séu félagslyndir. Nefndin lætur stjórn klúbbsins í té álit sitt. Nefndarmenn skulu vera sjö.

10.2.1.3      Fundarsóknarnefnd skal í samvinnu við ritara fylgjast með fundarsókn og minna félaga á fundarsóknarskyldu þeirra. Ef félagi sækir ekki á einu misseri 60% funda sbr. 12.7 skal nefndin gera stjórninni viðvartog gera tillögur um viðeigandi ráðstafanir.

10.2.1.4       Gestanefnd annast um móttöku gesta á fundum og sinnir þeim eftir föngum.

10.2.1.5        Skemmtinefnd sér um ferðalög og skemmtanir sem klúbburinn gengst fyrir.

10.2.1.5.1      Laganefnd er stjórn klúbbsins til ráðuneytis um lög sem gilda fyrir klúbbinn auk þess sem nefndin endurskoðar sérlög hans þegar þurfa þykir.

 

10.3    Starfsþjónustunefnd skal annast um að klúbbfélagar veiti við og við fræðslu um starfsgrein sína til þess að félagar fái skilið vandamál og starfsaðstöðu hvers annars svo og þjónustuhlutverk það sem hver um sig gegnir í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Skipa skal nefndir til að fjalla um einstaka þætti starfsþjónustu eftir því sem stjórnin telur ástæðu til.

 

10.4     Þjóðmálanefnd skal sjá um að helstu mál bæjarfélagsins og þjóðfélagsins verði jafnan kynnt félögum á fundum og leiðbeina þeim eftir föngum um það á hvern hátt þeir geta best lagt þessum málum lið.

 

10.5.     Alþjóðanefnd skal annast um að veitt verði fræðsla um alþjóðamál og á hvern hátt rótarýfélagsskapurinn og einstakir félagar geti best stuðlað að og eflt velvild og gagnkvæman skilning þjóða á milli.

 

10.6.     Hver nefnd skal inna af hendi þau störf sem henni eru falin skv. sérlögum þessum og önnur störf sem forsetinn eða stjórnin kunna að fela henni. Verkefni hverrar nefndar skal tilgreint í erindisbréfi forseta til nefndarinnar.

10.6.1.1     Formaður nefndar stjórnar fundum hennar og annast um framkvæmdir í málum sem nefndina varða. Forseti klúbbsins getur sótt fundi í öllum nefndum og jafnframt kvatt nefndirnar til að sitja stjórnarfundi. Hann skal fylgjast með því að nefndir ræki skyldur sínar.

 

11.0     Félagar

11.1     Í klúbbnum geta verið virkir félagar, meðvirkir félagar, aldvirkir félagar fyrrvirkir félagar og heiðursfélagar. með þeim undantekningum sem greinir hér á eftir skal eingöngu vera einn fulltrúi í klúbbnum fyrir starfsgrein.

 

 11.1.1       Virkir félagar. Virkan félaga má kjósa hvern þann sem er að góðu kunnur og  nýtur álits og gegnir ábyrgðarstöðu í starfsgrein sinni enda hafi hann aðalstarf sitt eða fast heimili á klúbbsvæðinu.

 

11.1.2.1     Meðvirkir félagar. Klúbburinn getur samþykkt tillögu virks félaga um að kjósa meðvirkan félaga sem hefur sömu atvinnu og tillögumaður og verði fulltrúi sömu starfsgreinar og hann. Skilyrði fyrir aðild meðvirks félaga eru hin sömu og tiltekin eru um virkan félaga. Slíkur meðvirkur félagi er að öllu leyti virkur félagi nema að því leyti að hann getur ekki gert tillögu um meðvirkan félaga skv. þessari grein. Meðvirkur félagi sem kosinn er skv. framangreindum ákvæðum verður sjálfkrafa virkur félagi og fulltrúi starfsgreinarinnar þegar virkri aðild tillögumanns lýkur eða ef tillögumaður verður aldvirkur. Klúbburinn getur ef fulltrúi hlutaðeigandi starfsgreinar samþykkir kosið sem meðvirkan félaga hvern þann sem fyrrvirkur félagi í rótarýklúbbi og er starfandi á vinnustað innan marka klúbbsvæðisins eða búsettur þar ef hann að öðru leyti fullnægir aldursskilyrðum.

 

11.1.2.2      Aldvirkir félagar. Sérhver sá sem hefur verið samtals virkur og/eða fyrr virkur félagi í einum eða fleiri rótarýklúbbum og það gildir um sem segir hér á eftir verður sjálfkrafa aldvirkur;

a.      þegar hann hefur verið félagi í einum eða fleiri klúbbum í samtals 15 ár eða lengur.

b.      þegar hann er orðinn 60 ára eða eldri og hefur verið félagi í einum eða fleiri klúbbum í samtals 10 ár eða lengur.

c.      þegar hann er orðinn 65 ára eða eldri og hefur verið félagi í einum eða fleiri klúbbum í samtals 5 ár eða lengur

d.      þegar hann er eða hefur verið embættismaður Alþjóðasambands rótarýmanna.

 

Klúbburinn getur kjörið sem aldvirkan félaga fyrrverandi félaga úr hvaða rótarýklúbbi sem er, sem er aldvirkur eða hefði getað orðið það á þeim tíma sem hann hætti að vera klúbbfélagi enda sé þessi fyrrverandi félagi búsettur eða starfandi á vinnustað innan klúbbsvæðisins eða nágrenni þess.

Aldvirkur félagi skal hafa öll réttindi, fríðindi og  skyldur virks félaga nema að ekki skal litið á hann sem fulltrúa neinnar starfsgreinar og þá á hann ekki rétt á að gera tillögu um meðvirkan félaga skv. 11.1.2

 

11.1.2.3    Fyrrvirkir félagar. Þegar klúbbaðild virks félaga lýkur vegna þess að hann hættir störfum í þeirri starfsgrein sem hann er fulltrúi fyrir, má kjósa hann fyrrvirkan félaga enda hafi hann búsetu áfram innan klúbbsvæðisins eða í nágrenni þess. Fyrrvirkur félagi skal hafa öll réttindi og skyldur sem virkur félagi að öðru leyti en því  að ekki skal litið á hann sem fulltrúa neinnar starfsgreinar og hann á ekki rétt á að bera fram tillögur um meðvirka félaga skv. 11.1.2.

 

11.1.2.4      Heiðursfélagar. Kjósa má heiðursfélaga í klúbbnum hvern þann sem unnið hefur frábærlega vel að hugsjón rótarýmanna. Heiðursfélagar skulu vera undanþegnir greiðslu á inntökugjaldi og árgjöldum. Þeir hafa ekki atkvæðisrétt go eru ekki kjörgengir til neins embættis í klúbbnum. Ekki skal litið á heiðursfélaga sem fulltrúa starfsgreinar en þeir hafa rétt til að sitja alla fundi klúbbsins og njóta annarra fríðinda klúbbsins. Engin heiðursfélagi á tilkall til neinna réttinda eða fríðinda í öðrum klúbbi.

 

11. 2      Opinberar stöður. Menn sem kjörnir eru eða skipaðir í opinbera stöðu um tiltekinn tíma eru ekki kjörgengir sem virkir félagar í klúbbi sem fulltrúar fyrir slíkar stöður. Þetta á þó hvorki við menn sem gegna starfi eða stöðu í skólum eða öðrum fræðslustofnunum né um menn sem kjörnir eru eða skipaðir í dómarastöðu. Virkur klúbbfélagi sem er kjörinn eða skipaður í opinbera stöðu um tiltekið tímabil getur á meðan hann gegnir stöðunni haldið áfram að vera virkur félagi í klúbbnum sem fulltrúi fyrir starfsgrein sem hann taldist til þegar hann var kjörinn eða skipaður í stöðuna.

Tvöföld klúbbaðild. Félagar mega ekki vera virkir, aldvirkir eða fyrrvirkir félagar í fleiri en einum klúbbi samtímis.

 

11.3.    Um aðild að klúbbnum skal fara skv. ákvæðum 3.liðs 4.gr. laga RI. Skipan virks félaga í starfsgrein skal miðast við viðurkennda aðalstarfsemi fyrirtækis, félags eða stofnunar sem hann er tengdur eða starfi hann sjálfstætt skal skipan hans í starfsgrein miðast við viðurkennda aðalstarfsemi hans. Stjórn klúbbsins getur leiðrétt eða breytt skipan klúbbfélaga í starfsgrein enda réttlæti aðstæður þá ráðstöfun. Tilkynna skal klúbbfélaganum slíka fyrirhugaða breytingu eða lagfæringu með hæfilegum fyrirvara.

 

12. 0    Félagsaðild

12. 1     Félagsaðild skal haldast svo lengi sem klúbburinn starfar með þeim undantekningum sem hér fara á eftir:

a.      Félagsaðild lýkur sjálfkrafa ef og þegar virkur félagi hættir þeirri atvinnu sem skipan hans í starfsgrein miðast við í klúbbnum eða hættir að eiga vinnustað sinn eða heimili innan klúbbsvæðisins eða tengsl hans við atvinnustofnun rofna. Stjórn klúbbsins getur veitt virkum félaga sem flyst af klúbbsvæðinu sérstakt fjarvistarleyfi í allt að eitt ár til þess að gera honum kleift að heimsækja og kynnast rótarýklúbbi í sveitarfélagi sem hann flyst til enda hafi hann áfram þá atvinnu sem starfsgreinaflokkun hans er miðuð við og haldi áfram að uppfylla öll skilyrði rótarýaðildar þ.á.m. varðandi fundarsókn. Þó virkur félagi hætti að eiga vinnustað sinn eða heimili innan marka klúbbsvæðisins má hann halda félagsaðild sinni ef hinn nýi vinnustaður hans er innan marka Reykjavíkurborgar eða innan marka nágrannaklúbbs.

b.      Aðild heiðursfélaga lýkur sjálfkrafa næsta 30.júní eftir heiðurskjörið. Stjórnin getur tekið ákvörðun um framlengingu slíkrar heiðursaðildar ár frá ári í eitt át í senn. Stjórnin getur framlengt slíka heiðursaðild enda þótt sá sem kjörinn er á þennan hátt flytjist af klúbbsvæðinu.

 

12. 2    Sérhver félagi sem er fjarverandi á fundi getur bætt fyrir slíka fjarvist með því að sækja fundi í öðrum rótarýklúbbi eða klúbbi sem verið er að stofna hvenær sem er frá þeim tíma sem síðasti fundur þessa klúbbs var haldinn fyrir fjarverudaginn og til þess tíma sem næsti fundur eftir fjarverudaginn er haldinn. Fær hann þá fulla viðurkenningu fyrir fundarsókn í þessum klúbbi vegna þess fundar sem hann sótti ekki í klúbbi sínum enda sendi ritari klúbbsins sem heimsóttur var tilkynningu um slíka fundarsetu eða félaginn gefur sjálfur skýrslu um hana. Þetta er þó bundið því skilyrði að félagi hafi hvert misseri sótt a.m.k. 30% funda í klúbbi sínum hafi klúbbstjórn ekki veitt honum undanþágu.

 

12. 3.    Komi klúbbfélagi á venjulegan fundarstað annars klúbbs á föstum fundartíma til að sitja fund en fundur hefur verið felldur niður eða er á öðrum tíma eða öðrum stað þá skal félaginn fá viðurkenningu fyrir fundarsókn í klúbbnum sem hann heimsótti eins og hefði fundur verið haldinn á réttum stað á réttum tíma enda tilkynni ritari klúbbsins sem heimsækja skyldi málavöxtu  eða félaginn gefur um það skýrslu.

 

12.4.1.     Sérhver fundarskyldur félagi sem er ekki viðstaddur a.m.k. 60% af þeim tíma sem ætlaður er til þess fundar sem hann sækir telst fjarverandi á þeim fundi nema samþykki forseta komi til.

 

12. 5.   Félagsaðild fundarskylds félaga lýkur sjálfkrafa nema öðruvísi sé fyrir mælt hér á eftir ef fundarsókn hans á fyrra eða síðara misseri starfsársins hefur verið minni en 60% nema klúbbstjórn telji afsökun hans góða og gilda.

 

12.6.1.1    Greiði félagi ekki gjöld sín þrátt fyrir ítrekuð tilmæli gjaldkera lýkur félagsaðildinni sjálfkrafa nema stjórn veiti frekari gjaldfrest.

 

12. 7.    Geti félagi ekki sökum veikinda, örorku, vinnu eða fjarvista af landinu fullnægt ákvæðum um fundarsókn sbr. gr. 12.5 og 12.6 má klúbbstjórn veita undanþágu frá fundarskyldu meðan þetta ástand varir berist ósk um það frá klúbbfélaganum. Veiti stjórn klúbbsins undanþágu frá fundarskyldu sbr. ofangreint skal fjarvist félagans hvorki talin í fundarsóknarskýrslum klúbbsins né tekin með í reiknuðu hlutfalli fundarsóknar viðkomandi klúbbfélaga.

 

12.8.1.1    Sérhver aldvirkur félagi sem hefur átt aðild að einum rótarýklúbbi eða fleiri í samtals 20 ár eða lengur og orðinn er 65 ára gamall eða hefur átt aðild að einum eða fleiri klúbbum samtals í 15 ár eða lengur og er orðinn 70 ára gamall getur sent ritara klúbbsins bréf þar sem hann óskar eftir undanþágu frá fundarskyldu. Samþykki klúbbstjórn beiðnina skal fjarvist félagans ekki talin með í fundarsóknarskýrslum klúbbsins.

 

12.9.1.     Klúbbstjórn getur fellt niður aðild hvers þess félaga sem fullnægir ekki lengur aðildarskilyrði eða klúbbstjórn telur nægja ástæðu til að fella aðild niður hjá enda sé það samþykkt með a.m.k. 2/3 atkvæðum stjórnarmanna. Tilkynna skal félaganum bréflega hinar fyrirhuguðu aðgerðir og gefa honum a.m.k. 10 daga frest til að leggja fram skriflegt svar og hann skal einnig eiga þess kost að koma á stjórnarfund til þess að útskýra mál sitt.

 

13.0    Úrsögn félaga úr klúbbnum skal vera skrifleg stíluð til forseta  ritara. Hver sá er lokið hefur aðild sinna að klúbbnum á hvaða hátt sem er missir allt tilkall til sjóða eða annarra eigna klúbbsins.

 

14.0     Útnefning nýrra félaga

14.1.1.   Virkir félagar og meðvirkir félagar. Tillögu um nýjan félaga skal afhenda ritara bréflega sem veitir henni viðtöku f.h. stjórnar, kynnir  framkomna tillögu og afhendir viðkomandi nefndum gögn til umfjöllunar og úrlausnar. Farið skal með tillöguna sem trúnaðarmál uns afstaða klúbbsins liggur fyrir.

14.1.1    Stjórnin felur starfsgreinanefnd að kanna hvort tillagan samræmist gildandi starfsgreinaskrá og félagavalsnefnd að athuga verðleika þess sem stungið er upp á.

 

14.1.2.1      Stjórnin samþykkir eða synjar áliti starfsgreina-og félagavalsnefnda og felur ritara að tilkynna tillögumanni niðurstöðuna.

 

14.1.2.2      Sé niðurstaðan jákvæð skal tillögumanni falið ásamt einum eða fleirum úr klúbbþjónustunefnd að kynna væntanlegum félaga tilgang rótarýhreyfingarinnar og réttindi og skyldur félaga. Jafnframt er gengið úr skugga um að hann samþykki að nafn hans og starfsgreinaflokkun verði kynnt klúbbnum.

 

14.1.2.3       Komi engin andmæli frá klúbbfélögum innan 10 daga frá birtingu nafns væntanlegs félaga skal litið svo á að hann sé samþykktur félagi. Hafi andmæli borist stjórninni afgreiðir hún málið með atkvæðagreiðslu. Aðild er synjað ef mótatkvæði er greitt innan stjórnarinnar en ella telst hann samþykktur sem félagi og skal kynntur sem slíkur við inngöngu í klúbbinn á fundi.

 

14.2      Þegar virkur klúbbfélagi hættir störfum í þeirri starfsgrein sem hann er fulltrúi fyrir í klúbbnum getur stjórn veitt honum aðild sem fyrrvirkum félaga. Stjórnin getur ákveðið að höfðu samráði við félagavalsnefnd að bjóða fyrrvirkum og aldvirkum félögum frá öðrum rótarýklúbbum aðild ef þeir fullnægja öllum aðildarskilyrðum skv. 3.lið 4.gr. laga Alþj.samb. rótarýmanna. Slík ákvörðun skal tilkynnt klúbbfélögum skriflega. Hafi forseta klúbbsins ekki borist andmæli gegn þeirri ákvörðun innan 10 daga frá dagsetningu tilkynningar getur stjórnin veitt honum aðild að klúbbnum. Um meðvirka félaga og heiðursfélaga skal far á sama hátt og um val á virkum félaga eftir því sem við á.

 

14.2.      Engin félagi má skýra frá neinu utan klúbbsins er varðar tilnefningu eða atkvæðagreiðslu um inntöku í klúbbnum.

 

14.1     Lagabreytingar

Tillögur um lagabreytingar skulu vera skriflegar og skal stjórnin senda öllum félögum þær a.m.k. einni viku áður en þær koma til umræðu. Hafa skal 2 umræður um breytingarnar. Lagabreytingar öðlast gildi ef þær eru samþykktar á ályktunarfærum fundi með 2/3 atkvæða viðstaddra fundarskyldra félaga enda séu þær í samræmi við grundvallarlög og samþykktir Alþjóðasambands rótarýmanna.

 

Þannig samþykkt á fundi Rótarýklúbbsins Reykjavík Árbær

Grafarvogur þ. 18.1.2001.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica