Fréttir

Spennandi Berjaferð handan við hornið - 6.9.2010

Hin árlega haustferð Rótarýklúbbs Reykjavík Austurbæ er fyrirhuguð 25. september.  Mökum er ávallt boðið með í þessar ferðir sem kallaðar hafa verið Berjaferðir. Dagskrá væntanlegrar ferðar er ekki af lakara taginu enda enginn annar í forsvari en Svanhildur Konráðsdóttir, sviðstjóri Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Með henni í undirbúningsstarfinu eru þau Bergþór Pálsson, Gyða Björnsdóttir, Guðmundur Þorgeirsson og Þórður Sverrisson. Nú þegar hafa 40 félagar skráð sig.
Lagt verður af stað frá Skarfabakka. Meðal þess sem er á dagskrá er heimsókn á Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum og Gvendarbrunnar - vatnsból Reykvíkinga skoðaðir. Margt fleira skemmtilegt verður gert þennan dag sem lýkur með kvöldverði í Viðeyjarstofu.
 

Þakkir frá formanni starfshópaskiptanefndar umdæmisins - 27.8.2010

Bréf frá Birnu Bjarnadóttur, formanni starfshópaskiptanefndar umdæmisins hefur borist forseta Rótarýklúbbs Reykjavíkur Austurbæ þar sem hún fyrir hönd nefndarinnar þakkar félögum í klúbbnum fyrir móttöku GSE hópsins frá Kansas og fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til að gera heimsókn þessara Kansasbúa jafn eftirminnilega og raun ber vitni. 
 

Nýjar leiðir í söfnun og miðlun tölfræðigagna - 12.8.2010

Rótarýklúbbur Reykjavík - Austurbær hefur verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa hlýtt á sérlega áhugaverða fyrirlestra undanfarið ár.
Á fundi 12. ágúst hélt Hjálmar Gíslason stofnandi og framkvæmdarstjóri DataMarket fyrirlestur um hvernig hægt er að miðla tölulegum upplýsingum á lifandi og litríkan hátt.
Datamarket er sprotafyrirtæki sem vakið hefur mikla athygli bæði hérlendis og erlendis.
Erindi Hjálmars heitir „Landsins gögn og nauðsynjar - vannýtt auðlind?“ Erindið vakti mikla hrifningu. Hjálmar sagðist fús að heimsækja aðra klúbba með fyrirlesturinn sem vekur án efa áhuga hvort heldur fyrirtækja eða einstaklinga.

 

Berjaferð 25. september í Rótarýklúbbi Reykjavík - Austurbæ - 4.8.2010

Fyrirhugað er hjá Rótarýklúbbi Reykjavík - Austurbæ að fara í hina árlegu berjaferð  laugardaginn 25. september.  Skemmtinefnd undir forystu Svanhildar Konráðsdóttur hefur lofað að ferðin verði fróðleg, spennandi og skemmtileg.  Stjórnin hvetur til að félagar ásamt mökum fjölmenni í berjaferðina.  Hér er um að ræða einkar hentugt tækifæri til að hrista hópinn saman og kynnast mökum félaga enn betur. 

 

Rótarýklúbburinn Rvík-Austurbær

Fundarstaður

Radison SAS Hótel Saga, Hagatorgi (kort)
Fundartími: Fimmtudagur 12.00

----------------------------------------------
Kennitala : 4209922469
Netfang : rvk-austur@rotary.is
Veffang :
Fjöldi félaga í klúbbi : 80

 

Myndaalbúm

Mynd af fél. Rotimage_672148
Mynd af fél. Rotimage_672148
                       

Þetta vefsvæði byggir á Eplica