Fréttir

Minningarorð um Ólaf H. Óskarsson Rótarýfélaga okkar - 1.12.2011

„Trúr vinur er öruggt athvarf og auðugur er sá, sem finnur hann,“ er haft eftir Sírak, hinum forna spekingi. Þannig litum við Rótarýfélagar Ólafs H. Óskarssonar, fyrrum skólastjóra Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi, á þann trygga og góða félaga sem nú hefur kvatt jarðlífið og haldið til bjartari heima.

Lesa meira
 

Auglýst er eftir Rótarý skiptinema fyrir veturinn 2012 - 2013 - 18.11.2011

Rótarýklúbbur Seltjarnarness hefur ákveðið að styðja ungan Seltirning til árs Rótarý skiptináms veturinn 2012 - 2013. 
 
Lesa meira
 

Rótarýklúbbur Seltjarnarness styður bágstadda í Japan eftir hörmungarnar þar - 18.6.2011

Rótarýklúbbur Seltjarnarness ákvað í tilefni af 40 afmæli sínu í mars sl. að veita framlag úr sjóði sínum og efna til söfnunar meðal klúbbfélaga til styrktar bágstöddum í Japan af völdum jarðskjálftanna og flóðbylgjunnar sem reið yfir um svipað leyti og haldið var upp á afmælið. Málið hlaut góðar undirtektir og nemur heildarfjárhæðin rúmum 350 þúsund krónum. Vill klúbburinn með þessu leggja áherslu á hinn alþjóðlega þátt Rótarýstarfsins.

Lesa meira
 

Rótarýklúbbur Seltjarnarness gefur sundbikar í skólakeppni - 18.6.2011

Rótarýklúbbur Seltjarnarness gaf fyrir skemmstu fallegan bikar, sem veittur verður framvegis þeim er bestum árangri ná í sundkeppni grunnskólans á Seltjarnarnesi. Hún er haldin á hverju vori að tilhlutan klúbbsins. Nefnist bikarinn "Sundbikar Rótarýklúbbs Seltjarnarness -- ERLENDARBIKARINN -- í minningu sundafreka Erlendar Ólafs Jónssonar (1923-2004)".

Lesa meira
 

Hátíðarguðsþjónusta Rótarýklúbbs á þjóðhátíðardaginn - 14.6.2011

Rótarýfélagar á Seltjarnarnesi standa að hátíðarguðsþjónustu á þjóðhátíðardaginn nk. föstudag 17.júní kl. 11 í Seltjarnarneskirkju og bjóða upp á veitingar að messu lokinni. Í guðspjalli dagsins sem er úr 17. kafla Mattheusarguðspjalls, 7. til 12. vers, eru m.a. kjörorð Rótarýhreyfingarinnar: „Allt sem þér viljið að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera“.

Lesa meira
 
HRH_407640

Rótarýklúbbur Seltjarnarness 40 ára - 8.6.2011

Myndir frá afmælinu.

Rótarýklúbbur Seltjarnarness var 40 ára sunnudaginn 20. mars 2011. Af því tilefni var haldinn afmælisfundur í Félagsheimili Seltjarnarness. Auk núverandi Rótarýfélaga mættu fjölmargir fyrri félagar og deildu með okkur sögum og myndum frá stofnum klúbbsins og starfi síðustu ár.

Hreinn Hreinsson ljósmyndari var á staðnum ef tók fjölda mynda.

Lesa meira
 

Umdæmisstjóri heimsækir Rótarýklúbb Seltjarnarness. - 13.9.2010

Margrét Friðriksdóttir umdæmisstjóri Rótarý 2010 - 2010.

Margrét Friðriksdóttir umdæmisstjóri Rótarý 2010-2011 heimsótti Rkl. Seltjarnarness föstudaginn 10. sept., ásamt eiginmanni sínum, og efndi klúbburinn til kvöldverðarfundar með mökum af því tilefni í Félagsheimili Seltjarnarness.

Lesa meira
 

Nýr vefur Rótarýklúbbs Seltjarnarness - 29.8.2008

Í stöðugri þróun.

Rótarýklúbbur Seltjarnarness hefur opnað nýja síðu undir vef Rótarý Ísland.

Á meðan nýji vefurinn er í mótun má nálgast efni eldri vefs síðunni http://seltjarnarnes.jaginter.net/

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica