Ýmis fróðleikur
Ýmis fróðleikur fyrir klúbba
Hlutverk og skyldur ritara rótarýklúbbs:
1. Viðhalda félagatali klúbbsins í félagakerfinu og hjá RI (Member access).
2. Fylgjast með að rótarýfélagar viðhaldi sínum persónuupplýsingum í félagakerfinu, mjög nauðsynlegt er að tölvupóstfang (e-mail) sé rétt og gaman að nýlegar myndir séu af öllum.
3. Stofna og viðhalda upplýsingum um nefndir og fólk í nefndum klúbbsins í samstarfi við forseta.
4. Stofna í upphafi starfsárs rótarýfundi í félagakerfinu fyrir allt starfsárið.
5. Uppfæra tímanlega dagskrár funda og staðsetningu.
6. Skrifa fundargerð í félagakerfinu strax eftir rótarýfundi.
7. Skrá mætingar félaga klúbbsins og gesta úr öðrum klúbbum strax eftir fundi.
8. Sjá um að fréttir úr klúbbstarfinu séu skráðar á fréttasíðu viðkomandi rótrýklúbbs.
9. Tryggja að allir klúbbfélagar þekki aðkomu að félagakerfinu og hafi lykilorð.
11. Notendanafn rótarýfélaga er kennitala hans, upphafs lykilorði getur rótarýfélagi breytt siðar sjálfur í félagakerfinu.
Hlutverk og skyldur formanna nefnda og stjórna umdæmisins:
1. Stofna og viðhalda í félagakerfinu upplýsingum um nefndir og fólk í nefndum umdæmisins.
2. Stofna tímanlega nefndarfundi í félagakerfinu með réttum upplýsingum, m.a. um fundarefni
3. Skrifa fundargerð í félagakerfinu strax eftir nefndarfundi.
4. Skrá mætingar nefndarfólks og gesta úr klúbbunum strax eftir nefndarfundi.
5. Sjá um að skrá inn fréttir úr klúbbstarfinu á síðu viðkomandi umdæmisnefndar á vef umdæmisins.
