Lög og reglur
Lög rótarýklúbbs
Sérhver rótarýklúbbur hefur í raun tvenn lög, grundvallarlög rótarýklúbbs (Standard Rotary Club Constitution) og sérlög rótarýklúbbs (Rotary Club Bylaw). Geri alþjóðahreyfingin breytingu á grundvallarlögum rótarýklúbba skal sérhver rótarýklúbbur samþykkja þær á klúbbfundi og ávallt tryggja að sérlög klúbbsins stangist ekki á við grundvallarlögin eða aðrar samþykktir Rotary International eða Rótarýumdæmisins á Íslandi.
