Erla Jónsdóttir, forseti InnerWheel á Íslandi flutti kveðju samtakanna og sagði frá starfinu.
Lesa meiraIngrid Grandum Berget umdæmisstjóri úr Noregi flutti á umdæmisþingi kveðju frá norrænu Rótarýumdæmunum. Sagðist hún líkja umdæmisþingi við þjóðhátíðardag, svo mikilvæg væru þau í hennar huga. Hún taldi siðfærði og friðarstarf ein mikilvægustu þáttum í starfi Rótarý og því til stuðnings fór hún með fjórprófið á íslensku við mikinn fögnuð.
Tryggvi Pálsson umdæmisstjóri setti nú fyrir stundu 66. Umdæmisþing Rótarýumdæmisins á Íslandi með því að kynna að í burðarliðnum væri stofnun nýs rótarýklúbbs með ungum félögum. Upplýsti hann að verkið væri unnið af Rótarýklúbbnum Reykjvík-Miðborg í samstarfi við Rótarýklúbb Reykjavík-Árbær og Reykjavík-Grafarvogur. Eftir að hafa kynnt gesti og embættismenn setti hann þingið.
Lesa meira
Fulltrúi alþjóðaforseta á umdæmisþinginu er Kenneth R. Boyd, RI Director og flytur hann ávarp á þinginu og á hátíðarkvöldverðinum á laugardag. Þá er Ingrid Grandum Berget, umdæmisstjóri frá Noregi fulltrúi norrænu umdæmanna og flytur hún ávarp á þinginu í dag. Meða annarra góðra gesta sem ávarpa umdæmisþingið er Erla Jónsdóttir umdæmisstjóri Inner Wheel á Íslandi.
Lesa meira