Umhverfisnefnd

Umhverfisnefnd

Environmental service

Halendið

 

 

 

 

 

 

 

Umhverfisnefnd umdæmisins er ætlað að styðja við klúbbana í umdæminu og bjóða þeim aðstoð við fundarefni á sviði umhverfismála. Ennfremur að bjóða ráðgjöf og hráefni til landbótaverkefna, t.d. trjáplöntur, fræ og áburð.Verkefni umhverfisnefndar:

Samstarf við Rótarýklúbba

  • Aðstoða formenn nefnda við framkvæmd umhverfisverkefna
  • Heimsækja Rótarýklúbba til að ræða um umhverfismálefni
  • Deila þekkingu og upplýsingum um umhverfismál
  • Fá reglulega upplýsingar um umhverfisverkefni Rótarýklúbba frá formönnum hlutaðeigandi nefnda
  • Hvetja til landgræðslu- og skógræktarferða og bjóða fram ráðgjöf og hráefni
  • Stuðla að ráðstefnum um umhverfismál

Hvetja til samhæfingar innan umdæmisins

  • Skipuleggja fundi innan umdæmisins með formönnum nefnda
  • Greina nýjar áherslur, málefni eða verkefni innan umdæmisins sem Rótarýklúbbar gætu litið til
  • Samhæfa umhverfisverkefni innan umdæmisins
  • Halda uppi samskiptum við aðrar nefndir umdæmisins
  • Koma hugmyndum á framfæri við klúbbana um leiðir til að kynna umhverfismál innan samfélagsins
  • Endurskoða Stefnu Rótarý umdæmisins í umhverfismálum

 



Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning

Efraval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica