Vefsíðunefnd

Vefsíðunefnd

Verkefni vefsíðunefndar er að viðhalda og stýra vefsíðu og félagakerfi Rótarýumdæmisins. Í því felst að gera tillögur að endurbótum og aðstoða þá sem vinna með síðuna við notkun hennar.

Í dag er unnið með þriðu kynslóð rótarýsíðunnar sem er langumfangsmesta vefsetur Rótarýumdæmisins til þessa. Síðan er unnin í samvinnu við Hugsmiðjuna í Eplica vefumsjónarkerfinu og nýtt félagakerfi sem var sérhannað af Hugsmiðjunni eftir kröfum vefsíðunefndar. Voru hugmyndir að síðunni kynntar á 61. umdæmisþinginu í Keflavík og nýr vefur var svo formlega opnaður á 62. umdæmisþinginu á Akureyri.

Með vefnum er nýtt skref tekið í tölvuvæðingu umdæmisins, en á vefnum er öflugur gagnagrunnur þar sem haldið er utan um félagatal og þátttöku félaganna í rótarýfundum og nefndarstörfum. Auk þess er settar upp heimasíður fyrir alla rótarýklúbbana og allar upplýsingar mjög aðgengilegar.

Gríðarleg vinna liggur á bak við vefinn og mikil vinna liggur viðhaldi hans og þróun. Rótarýklúbbar og umdæmisnefndir eru hvattir til að nýta sér vefinn vel og miðla upplýsingu á sínum síðum.

Ritnefnd umdæmisins aðstoðar gjarnan við innsetningu á efni.

 




Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning

Efraval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica