Lágmarksviðmið Rotary International fyrir sjálfstæðu umdæmi er 1200 manns eða 35 klúbbar. Þessi mörk hafa verið að hækka og er það eitt af því mörgu jákvæðu sem gert er til að draga úr kostnaði við yfirstjórn í Rótarýhreyfingunni.
Þegar fræðslumót umdæmisins var haldið fyrir ári síðan kom fram að fullgildir félagar voru þá 1.173. Fyrir fræðslumótið sem haldið var 17. mars sl. var fjöldinn kominn í 1.194 en auk þess eru 49 heiðursfélagar. Rótarýklúbburinn Reykjavík Breiðholt tók svo inn þrjár nýja félaga í liðinni viku. Fjölgunin á liðnum tólf mánuðum er 24 félagar svo aðeins vantar aðra þrjá til að ná félagafjöldanum í 1.200 manns.
Lesa meira
Ánægjulegt er að sjá að skriður er kominn á notkun minningar- og heillakorta Rótarý. Þægilegt er að nýta sér þessa þjónustu. Kortin eru pöntuð á netinu gegnum rotary.is og einfalt er að millifæra síðan framlögin í heimabanka.
Lesa meira
Starfsárið er rétt rúmlega hálfnað. Af því tilefni hittust formenn nefnda og sjóða umdæmisins ásamt öðrum embættismönnum þess á Grand Hótel 2. febrúar sl.
Lesa meira