Verðandi umdæmisstjóri 2012-2013
Kristján Haraldsson
tilnefndur umdæmisstjóri 2012-2013
Umdæmisþing verður haldið á Ísafirði 14.-15. september 2012.
Kristján er fæddur á Hjalteyri við Eyjaförð 20. október 1947. Hann er sonur hjónanna Haraldar Axels Einarssonar húsasmíðameistara og Eufemíu Kristinsdóttur húsmóður, þau eru bæði látin.
Kristján er kvæntur Halldóru S. Magnúsdóttur og eiga þau 3 börn og 5 barnabörn.
Nám
Kristján lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1968, stundaði nám í efna og eðlisfræði við Wesleyan University í Connecticut USA í eitt ár, lauk fyrri hlutaprófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands 1972 og verkfræðiprófi frá Lunds Tekniska Högskola í Svíþjóð 1974.
Halldóra S Magnúsdóttir og Kristján Haraldsson
Störf
Kristján hóf störf hjá Íslenskum Aðalverktökum að námi loknu til ársins 1978 er hann tekur við starfi orkubússtjóra hjá Orkubúi Vestfjarða með aðsetur á Ísafirði, því starfi gegnir hann enn.
Félagsstörf
Kristján gerðist félagi í Rótaryklúbbi Ísafjarðar þann 7. apríl 1985 og hefur sinnt þar störfum forseta, ritara, gjaldkera og stallara og sumum oftar en einu sinni. Hann var forseti klúbbsins 1989-1990 og aftur 2009-2010. Hann var formaður undirbúningsnefndar fyrir umdæmisþing sem haldið var á Ísafirði 1995. Einnig hefur hann setið í nefndum umdæmisins er tengjast Rótarysjóðnum og PolioPlus verkefninu um langt árabil.
Kristján hefur verið formaður skólanefndar Tónlistarskóla Ísafjarðar síðan 1983 og er enn, hann hefur setið í menningarnefnd og verið formaður atvinnumálanefndar Ísafjarðabæjar, hann situr í skólanefnd Menntaskólans á Ísafirði.
Kristján er félagi í frímúrarastúkunni Njálu á Ísafirði og var stjórnandi hennar um 7 ára skeið.

