Menntun

Styrkir til menntunar

Rótarýsjóðurinn er einn umsvifamesti námsstyrkjasjóður heims.

Ambassadorial Scholarships

Styrkir sem ýmist eru veittir til eins árs, tveggja ára eða 3-6 mánaða námsdvalar utan heimalands. Á skólaárinu 2003-04 voru 827 styrkþegar frá 61 landi við nám á slíkum styrkjum í 60 löndum og var samtals veitt til þeirra 16.5 milljón dollara.MenntunA

Fyrr á árum fékk Ísland að ráðstafa einum styrk á ári en eftir að farið var að tengja styrkina framlögum einstakra umdæma hafa þessir styrkir verið sjaldnar í boði. Alls hafa 37 Íslendingar fengið þessa styrki Rótarýsjóðsins.

Meðan styrkþegar eru við nám er litið á þá sem gesti rótarýfélaga á háskólasvæðinu og sækja þeir fundi rótarýklúbba og segja frá sjálfum sér, landi og þjóð. Þetta er stærsti námsstyrkjaflokkurinn.

Friðarstyrkir

Þetta eru tveggja ára meistaranámsstyrkir Rótarýsjóðsins, voru fyrst veittir skólaárið 2002-2003. Ísland má senda eina umsókn um hvert námstímabil og hafa íslensku umsækjendurnir hlotið styrk við fyrstu fjórar úthlutanirnar. Fyrir skólaárin 2003-2005 leggur Rótarýsjóðurinn 3.9 milljón dollara til friðarstyrkja. Sjá nánar undir Námsstyrkir.

Styrkir til háskólakennara

Styrkirnir eru til 3 - 10 mánaða starfa í þróunarlandi hafa verið veittir frá 1985 og hafa alls 377 kennarar notið þeirra. Á skólaárinu 2003-04 voru 28 háskólakennarar frá 9 löndum við störf í 22 löndum. Til þessa var veitt 366 þúsund dollurum.

Starfshópaskipti

Sjá hér.




Útlit síðu:

Tungumál:

English

Innskráning:

Innskráning

Efraval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica