Tónlistarsjóður Rótarý
Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi. Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Styrkurinn verður veittur í janúar mánuði og verður að upphæð kr. 500.000. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, fyrir 1. október ár hvert. Netfang: rotary@rotary.is
Fyrsta úthlutað úr sjóðnum á 100 ára afmæli Rótarýhreyfingarinnar
Dagskrá vegna 100 ára afmælis Rótarýhreyfingarinnar hófst hér á landi með tónleikum í Salnum í Kópavogi þann 7. janúar 2005. Við það tækifæri var í fyrsta skipti veitt viðurkenning úr nýjum Tónlistarsjóði íslensku Rótarýhreyfingarinnar.
Átján umsóknir um styrk úr tónlistarsjóðinum. Það var eindóma álit dómnefndar að Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, hlyti fyrstu viðurkenninguna að upphæð 500 þúsund kr. til frekara náms.
Árlega er veitt úr tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi.
Úthlutanir frá upphafi:
-
2011: Sólveig Thoroddsen Jónsdóttir hörpuleikari
-
2010: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Jóhann Már Nardeau trompetleikari
-
2009: Ögmundur Þór Jóhannesson gítarleikari
-
2008: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari
-
2007: Bragi Bergþórsson, tenór
-
2006: Ari Þór Vilhjálmsson, fiðluleikari
-
2005: Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari.
