Skiptinemi til eins árs
Einn áhrifamesti þáttur alþjóðaþjónustu Rótarýhreyfingarinnar eru nemendaskipti sem standa til boða börnum rótarýfélaga jafnt sem öðrum. Skiptinemar þurfa að vera orðnir 16 ára en ekki eldri en 18 1/2 árs þann 1. september árið sem dvölin erlendis hefst. Skiptinemarnir dveljast eitt skólaár í gestgjafalandinu á heimilum rótarýmannna eða á öðrum heimilum sem rótarýmenn velja. Á heimsvísu fara yfir 8.000 ungmenni sem skiptinemar á vegum Rótarýhreyfingarinnar. Ungmennin fá dvalarleyfi í heimsóknarlandinu til að stunda nám en fá ekki rétt til að stunda atvinnu.
Ætlast er til að skiptin séu gagnkvæm þannig að þeir klúbbar sem senda nemendur utan taki á móti jafnmörgum í staðinn.
- Aldur 16 til 18 ára
- Dvölin er 11 mánuði á 2 til 4 heimilum rótarýmanna
- Gagnkvæm skipti
- Umsóknarfrestur er til 1. desember
Ávinningur nemendaskipta er ótvíræður því nemandinn:
lærir tungumál,- hann kynnist menningu framandi þjóða,
- öðlast reynslu daglegs lífs í framandi landi,
- stofnar til vináttu við fjölskyldur og skólafélaga,
- kynnist hugsjón Rótarý í verki,
- er þátttakandi í starfi rótarýklúbbs
- og er rótarýfélagi framtíðarinnar.
