Skilyrði og umsókn
Skilyrði og umsókn
Skilyrði:
Umsækjendur geta verið börn eða barnabörn rótarýfélaga eða aðrir sem áhuga hafa á að taka þátt í sumarbúðunum.
- Aldur: 16 til 24 ára
- Tímabil: Tvær til þrjár vikur.
- Heimili: Dvalið hjá fjölskyldu og/eða í sumarbúðum.
- Umsókn: Samkvæmt boðsbréfi til rótarýklúbba.
- Kostnaður: Ferðakostnaður, vasapeningar og tryggingar
Umsókn:
Þegar þú sérð sumarbúðir sem þú hefur áhuga á að taka þátt í sendir þú póst á youth@rotary.is eða hefur samband við Klöru Lísu Hervaldsdóttur, giskla@mi.is sími 856 5909.
Þá verður athugað hvort laust sé í viðkomandi ferð og ef svo er, þá færðu aðstoð við að ganga frá eyðublaði sem sendist til viðkomandi rótarýklúbbs.
Þessi tilboð eru fljót að fara, þannig að menn þurfa að bregðast skjótt við og „panta“ strax ferð áður en einhver annar gerir það!
