Sumarskiptinemar
Sumarskipti - frá heimili til heimilis
Æskulýðsnefnd Rótarý hefur milligöngu um ungmennaskipti í sumarleyfi. Ungmenni frá Íslandi sem fær meðmæli rótarýklúbbs, sækir um að dveljast í einn mánuð á heimili jafnaldra erlendis og síðan kemur erlendi gestgjafinn til jafnlangrar dvalar á Íslandi.
Umsóknarfrestur er til 1. janúar.
Æskulýðsnefnd umdæmisins veitir nánari upplýsingar.
Sendu fyrirspurn á youth@rotary.is
