Sumarskipti

Æskulýðsnefnd Rótarý umdæmisins hefur milligöngu um skammtíma skipti ungmenna á aldrinum 15-19 ára í sumarleyfi.

Ungmenni frá Íslandi sem fær meðmæli rótarýklúbbs, sækir um að dveljast í 3-6 vikur  á heimili jafnaldra af sama kyni erlendis og síðan kemur erlendi unglingurinn til jafn langrar dvalar á Íslandi.

Þetta eru skipti milli tveggja fjölskyldna í sínu hvoru landinum, sem eiga son eða dóttur, sem vilja upplifa ævintýri í sumarfríinu, kynnast nýju fólki og nýjum siðum, nýju tungumáli og vera saman í landi hvors annars. Kostnaður við þessi skipti eru alfarið á höndum fjölskyldnanna.

Komnar er fyrirspurnir frá:

Argentínu

Tyrklandi: Stúlka fædd í maí 2009, strákur fæddur 05.10.2009, stúlka fædd 11.01.2011 og stúlka fædd 14.02.2011

Slóvakíu: Strákur fæddur 2010

Frekari upplýsingar gefur æskulýðsnefnd umdæmisins youth@rotary.is.

 

Related Images: