Æskulýðsnefnd berast árlega allmörg boð um þátttöku í sumarbúðum erlendis eða stuttum ferðum sem skipulagðar eru af rótarýklúbbum í Evrópu (einnig stundum í Bandaríkjunum og Kanada).
Nefndin sendir þessi boð áfram til íslensku klúbbanna hverju sinni ásamt aldursmörkum og öðrum upplýsingum.
Sumarbúðir Rótarý 2024
Sjá lista hér: Sumarbudir_2024. Athugið ennþá eru að berast boð og því getur listinn verið breytilegur frá degi til dags
Um þátttöku í sumarbúðum
Kostnaður:
Þátttakendur greiða fargjald til og frá áfangastað og þurfa að hafa með sér vasapeninga fyrir einkaútgjöldum, einnig er orðið algengt að greiða þurfi þátttökugjald. Annað greiða gestgjafarnir s.s. mat, gistingu, skoðunarferðir o.s.frv. Í nokkrum tilfellum er farið fram á greiðslu fyrir leigu á búnaði s.s. köfunarbúnaði, fjallahjóli o.s.frv. Þessi kostnaður er yfirleitt tekinn fram á upplýsingablaði sumarbúðanna.
Tími:
Um það bil tvær vikur. Mismunandi tímasetning.
Gisting:
Oftast er gist aðra vikuna á heimili rótarýfélaga og hina vikuna á hótelum, gisti- eða farfuglaheimilum. Einnig er möguleiki á að gist sé um borð í bátum, í fjallakofum o.s.frv.
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er mismunandi, allt frá miðjum mars til loka maí. Hins vegar er úthlutað eftir kerfinu „fyrstur kemur, fyrstur fær“ þannig að mikilvægt er að bregðast skjótt við. Verið getur að fullskipað sé í einhverjar búðir þótt umsóknarfresturinn sé ekki liðinn.
Yfirleitt er aðeins einn þátttakandi frá hverju landi í hverri ferð fyrir sig og því er þetta frábær leið til að kynnast ungu fólki frá ýmsum löndum Evrópu. Í hverjum hópi eru frá 10 til 18 manns. Ungmennunum er boðið á rótarýfund þar sem það kynnir sig, afhendir rótarýfána og tekur við rótarýfána og segir frá hvaða landi það kemur.
Skilyrði:
Umsækjendur geta verið börn eða barnabörn rótarýfélaga eða aðrir sem áhuga hafa á að taka þátt í sumarbúðunum.
- Aldur: 15 til 24 ára
- Tímabil: vika til þrjár vikur.
- Heimili: Dvalið hjá fjölskyldu og/eða í sumarbúðum.
- Umsókn: Samkvæmt boðsbréfi til rótarýklúbba.
- Kostnaður: Ferðakostnaður, vasapeningar og tryggingar og stundum aukakostnaður, tilgreint á listanum.
Umsókn:
Þegar þú sérð sumarbúðir sem þú hefur áhuga á að taka þátt í sendir þú póst á youth@rotary.is með upplýsingum um nr og landi/löndum í áhugaröð.
Þá verður athugað hvort laust sé í viðkomandi ferð og ef svo er, þá færðu aðstoð við að ganga frá eyðublaði sem sendist til viðkomandi rótarýklúbbs.