Einn áhrifamesti þáttur alþjóðaþjónustu Rótarýhreyfingarinnar eru nemendaskipti sem standa til boða börnum rótarýfélaga jafnt sem öðrum.
Skiptinemar þurfa að vera orðnir 16 ára en ekki eldri en 18 1/2 árs þann 1. september árið sem dvölin erlendis hefst.
Skiptinemarnir dveljast eitt skólaár í gestgjaalandinu á heimilum rótarýmannna eða á öðrum heimilum sem rótarýmenn velja.
Á heimsvísu fara árlega yfir 8.000 ungmenni sem skiptinemar á vegum Rótarýhreyfingarinnar og dvelja í yfir 100 löndum.
Ungmennin fá dvalarleyfi í heimsóknarlandinu til að stunda nám en fá ekki rétt til að stunda atvinnu.
Ætlast er til að skiptin séu gagnkvæm þannig að þeir klúbbar sem senda nemendur utan taki á móti jafnmörgum í staðinn.
Aldur 16 til 19 ára- Dvölin er 10-12 mánuðir (eitt skólaár) á 1 til 4 heimilum
- Gagnkvæm skipti milli Rótarýklúbba
Umsóknarfrestur er til 1. desember ár hvert
Ávinningur nemendaskipta er ótvíræður því nemandinn:
- Lærir tungumál
- hann kynnist menningu framandi þjóða
- öðlast reynslu daglegs lífs í framandi landi
- stofnar til ævilangrar vináttu við fjölskyldur og skólafélaga
- kynnist hugsjón Rótarý í verki
- er þátttakandi í starfi rótarýklúbbs
- er rótarýfélagi framtíðarinnar.
Góður skiptinemi er góð landkynning og framlag til friðar í heiminum.
Hvernig get ég sótt um sem skiptinemi á vegum Rótarý?
Í grófum dráttum er ferlið svona:
- Það þarf að finna stuðningsklúbb? Hvað þýðir það? Og hvernig fer ég að því? Mælt er með að hafa samband við klúbb í nærumhverfi þínu, sjá klúbba og kanna hvort klúbburinn sé tilbúinn að styðja nema til skiptináms. Gott að hafa þá helstu upplýsingar eins og nafn, kyn og aldur og ósk um dvalarland (frá 1-3) og af hverju vilt þú fara sem skiptinemi á vegum Rótarý.
- Einnig má fá leiðbeiningar frá æskulýðsnefnd með fyrirspurn til youth@rotary.is um mögulegar hugmyndir af klúbbum til að setja sig í samband við. Til að fá umsókn um skiptinám verður að senda tölvupóst á æskulýðsnefnd og óska eftir umsókninni. Hér er að finna leiðbeiningar sem eiga við umsóknina, þar koma fram helstu upplýsingar um það sem þarf að framkvæma og upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru til skiptinema.
Helstu skyldur klúbba sem taka skiptinema:
- Klúbburinn þarf að finna 2-4 fjölskyldur til að fóstra skiptinema meðan á dvölinni stendur – í stað þess nema sem klúbburinn sendir erlendis.
- Bjóða skiptinemanum á fundi og uppákomur hjá klúbbnum og klúbbfélögunum og kynna land og þjóð.
- Að neminn fái vasapening sem nemur ca. 100 dollurum á mánuði.
- Að útvega skiptinemanum skólabækur og greiða skólagjöldin og gefa nemanum afmælis- og jólagjöf
Nánari upplýsingar má fá á youth@rotary.is
eða í síma 856 5909, Klara Lísa.





