Latest blog posts

Written by our founders and volunteers, keeping you up to date!

Sigríður Björk afhenti Elísabetu umdæmisstjórakeðjuna

Umdæmisstjóraskipti voru í kvöld, þó nýtt starfsár hefjist ekki formlega fyrr en 1. júlí. Skiptin fóru fram að lokinni forsetaskiptum í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar.Sigríður Björk Gunnarsdóttir, úr Rótarýklúbbnum Hofi, sem gegnt hefur embætti umdæmisstjóri þetta starfsár af mikill röggsemi, afhenti Elísabetu Sigurveigu Ólafsdóttur úr Rótarýklúbbi Mosfellssveitar umdæmisstjórakeðjuna og óskaði henni velfarnaðar en Elísabet verður umdæmisstjóri 2026-2027.Elísabet ávarpaði gesti og sagði traustvekjandi að taka við með svona samheldinn klúbb á bak við sig. Sagðist ætla að leggja sig alla fram við...

Stóri plokkdagurinn er á morgun, 26. apríl.

7Rótarýklúbbar um land allt taka þátt í deginum ásamt mörgum áhugasömum plokkurum. Rótarý á Íslandi hvetur landsmenn til að taka þátt og leggja þessu góða verkefni lið.Setningarathöfn Setningarathöfn verður við Krónuna  við Akrabraut í Garðabæ og hefst hún kl. 10.30.  Fólk er hvatt til að taka þátt og hreinsa umhverfið í góðum félagsskap. Plokk um land allt Rótarýklúbbar eru með sína eigin viðburði og sumir klúbbar vinna saman þennan dag. Allir eru hvattir til að taka þátt þennan dag, einstaklingar, fjölskyldur, vinir, húsfélög,...

Eldhugi Kópavogs kemur úr röðum Hjálparsveitar skáta

Rótarýklúbbur Kópavogs hefur útnefnd Eldhuga Kópavogs 2026.Markmiðið með eldhugavalinu er að útnefna Kópavogsbúa, sem vakið hefur athygli og þykir hafa skarað fram úr í störfum sínum og athöfnum og verið öðrum fyrirmynd.Þetta er í 29. skipti sem Eldhugi Kópavogs er útnefndur en alls hafa 30 verið útnefndir. Guðmundur K. Einarsson er Eldhugi Kópavogs 2026 Í ár varð Guðmundur K. Einarsson, félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, fyrir valinu.Guðmundur K Einarsson fæddist í Darmstadt í Þýskalandi árið 1959, þar sem faðir hans...

Ingibjörg Jakobína fékk Hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Grafarvogs

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Grafarvogur hefur árlega veitt hvatningarverðlaun, fyrst í Rimaskóla fyrir námsárangur á sviði umhverfis- og samfélagsmála en hin síðari ár til nemenda í Borgarholtsskóla, bæði á vor- og vetrarútskrift. Í samvinnu við kennara skólans fá þeir nemendur verðlaun sem sýna eftirtektarverðar framfarir. Framtakið hefur mælst vel fyrir.Verðlaunahafinn í ár er Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir.Ingibjörg er útskrifuð sem grafískur hönnuður og í umsögn segir: „Ingibjörg er einstaklega duglegur námsmaður sem hefur sýnt miklar framfarir í námi síðustu annirnar. Þrátt fyrir erfiðar...

Styrkir voru veittir á glæsilegum hátíðartónleikum

Hátíðartónleikar Rótarý voru haldnir í Salnum í Kópavogi í dag og var uppselt.Þar fengu þær Ásta Dóra Finnsdóttir, píanóleikari og Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðluleikari afhenta styrki úr Tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi en hvor styrkur er ein milljón krónur.Víkingur Heiðar Ólafsson, fyrsti styrkþegi Tónlistarstjóðsins árið 2005, afhenti styrkina og hóf tónleikana með því að leika verk eftir Bach á nýja flygilinn í Salnum við mikinn fögnuð gesta.Á hátíðartónleikunum komu fram, ásamt Helgu Diljá og Ástu Dóru, þau Jóna G. Kolbrúnardóttir,...

Related Images: