Umdæmisstjóraskipti voru í kvöld, þó nýtt starfsár hefjist ekki formlega fyrr en 1. júlí. Skiptin fóru fram að lokinni forsetaskiptum í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar.
Sigríður Björk Gunnarsdóttir, úr Rótarýklúbbnum Hofi, sem gegnt hefur embætti umdæmisstjóri þetta starfsár af mikill röggsemi, afhenti Elísabetu Sigurveigu Ólafsdóttur úr Rótarýklúbbi Mosfellssveitar umdæmisstjórakeðjuna og óskaði henni velfarnaðar en Elísabet verður umdæmisstjóri 2026-2027.
Elísabet ávarpaði gesti og sagði traustvekjandi að taka við með svona samheldinn klúbb á bak við sig. Sagðist ætla að leggja sig alla fram við að sinna embættinu af kostgæfni

Hver er Elísabet?
Elísabet er 71 árs löggildur sáttamiðlari og starfaði hjá Ríkissáttasemjara sem skrifstofustjóri og sáttasemjari frá 1983 og vann einnig um tíma hjá Ríkissáttasemjara í Kaupmannahöfn. Áður hafði hún starfað hjá Kjararannsóknarnefnd og á Búreiknistofu landbúnaðarins.

Hún gekk til liðs við Rótarýklúbb Mosfellssveitar árið 2000 og var gjaldkeri 2001-2002 og ritari 2002-2003. Hún sagði skilið við klúbbinn árið 2005 en gekk til liðs við klúbbinn árið 2015 og hefur gegnt þar fjölmörgum trúnaðarstörfum, m.a. var hún forseti klúbbsins 2020-2021.
Elísabet fæddist á Akureyri en ólst upp á Vopnafirði og fluttist til Reykjavíkur þegar hún var 17 ára gömul. Hún er stoltur Vopnfirðingur sem þreytist ekki á að segja fólki að þar sé veðrið allra best á sumrin.
Elísabet á tvö börn og þrjú barnabörn sem njóta þess að ferðast saman bæði utanlands og innan. Seinni eiginmaður Elísabetar, Hreiðar Örn Gestsson, lést árið 2017 eftir erfið veikindi.
„Það leggst mjög vel í mig að taka við sem umdæmisstjóri, og ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með tilnefningunni. Ég hlakka til að setjast í umdæmisráðið og læra af reynsluboltunum sem þar sitja og fá tækifæri til fræðast um starf Rótarýhreyfingarinnar bæði hérlendis og í öðrum löndum,“ sagði Elísabet S. Ólafsdóttir þegar hún var tilnefndur umdæmisstjóri árið 2024.
Ávarp fráfarandi umdæmisstjóra

Sigríður Björk ávarpaði gesti og fór yfir hápunktana í starfinu á liðnu starfsári. Hún þakkaði samstarfsfólki í umdæmisráði og öllum þeim sem höfðu starfað fyrir umdæmið.
Nýr félagi og PH orður
Óskar Örn Ágústsson, fráfarandi forseti í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar lét það verða sitt síðasta verk að taka inn nýjan félaga og veitti þeim Hafsteini Pálssyni og Þuríði Yngvadóttur PH-viðurkenningu fyrir góð störf fyrir klúbbinn.



Þá afhenti hann Kolbrúnu Reinholdsdóttur forsetakeðjuna og óskaði henni velfarnaðar.











