Sunnudagur, 25. janúar 2026
HeimFréttirKlúbbafréttirRótarýklúbbur gaf tæki til útskurðar

Rótarýklúbbur gaf tæki til útskurðar

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Landvættir færði Vin gjöf

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Landvættir færði nýlega Vin, fræðslu- og batasetri góða gjöf sem var vel tekið.

Gjöfin eru ýmis tól og tæki til úrskurðar að verðmæti um 100 þúsund krónur.

Á hverjum mánudegi koma margir gestir Vinjar saman og tálga áhugaverða hluti og skera út og fá til þess leiðsögn. Þar sem ekki eru sterk fjárráð hjá VIn kom gjöf rótarýklúbbsins sér einstaklega vel.

Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir; helsta hlutverk Vinjar að draga úr félagslegri einangrun og skapa vinalegt umhverfi fyrir gesti setursins.

Unnið við útskurð

Yfir hundrað einstaklingar heimsækja Vin reglulega. Þar er lögð áhersla á fræðslu- og batamiðuð verkefni til að efla virkni gesta, með tilliti til þarfa og áhuga hvers og eins. Þar er meðal annars starfrækt ferðafélagið Víðsýn og Vinaskákfélag. Þar er einnig listasmiðja, haldnir fundir og margt fleira. Vin er starfrækt við Hverfisgötu í Reykjavík.

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Landvættir er lítill klúbbur sem hefur verið starfræktur síðan árið 2018. Klúbbfélagar hittast vikulega snemma morguns í Dönsku stofunni á Geira Smart við Hverfisgötu.

Halldóra Pálsdóttir og G. Pétur Matthíasson forseti Rótarýklúbbsins Reykjavík-Landvættir.

Auk þess sem rótarýfélagar láta gott af sér leiða á alþjóðavísu þar sem baráttan fyrir útrýmingu lömunarveiki ber hæst þá er það líka stefna Rótarý að félagar láti gott af sér leið í sínu nærumhverfi. Því var það nærtækt fyrir Reykjavík-Landvættir að styðja við Vin í miðborg Reykjavíkur. Félagar klúbbsins greiddu aukagjald til að safna fyrir þessar gjöf til Vinjar. Áður hefur klúbburinn safnað fyrir saumavél sem Vin var fært og sem hefur komið í góðar notir.

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Landvættir vonast til að útskurðarverkfærin komi að góðum notum og mun halda áfram að styðja við það góða starf sem fer fram hjá Vin og er þakklátur fyrir góða granna.

Albert Ingason, leiðbeinandi við útskurð, húsgagnasmiður

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum