HeimFréttirStóri plokkdagurinn er á morgun, 26. apríl.

Stóri plokkdagurinn er á morgun, 26. apríl.

7Rótarýklúbbar um land allt taka þátt í deginum ásamt mörgum áhugasömum plokkurum.

Rótarý á Íslandi hvetur landsmenn til að taka þátt og leggja þessu góða verkefni lið.

Setningarathöfn

Setningarathöfn verður við Krónuna  við Akrabraut í Garðabæ og hefst hún kl. 10.30.  Fólk er hvatt til að taka þátt og hreinsa umhverfið í góðum félagsskap. 

Plokk um land allt

Rótarýklúbbar eru með sína eigin viðburði og sumir klúbbar vinna saman þennan dag.

Allir eru hvattir til að taka þátt þennan dag, einstaklingar, fjölskyldur, vinir, húsfélög, fyrirtæki, stofnanir og halda svo áfram plokki allt árið þegar færi gefst.

Plokk er einfalt í framkvæmd. Með töng og poka getum við lagt okkar af mörkum.  Ekki er síður mikilvægt að ganga vel um og henda alltaf á rétta staði.

Við öll getum minnkað rusl 

Fyrirtæki og einstaklingar geta lagt mikið af mörkum með því að hindra að rusl fjúki úr tunnum, gámum og af byggingasvæðum. Náttúran þarf okkar hjálp.

Stóri plokkdagurinn er í umsjá Rótarýhreyfingarinnar og er styrktur af umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins og Landsvirkjunar.

Góða skemmtun á morgun.

Stóri plokkdagurinn á Facebook

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum