HeimFréttirUmdæmisfréttirPolio Plus dagurinn er 24. október

Polio Plus dagurinn er 24. október

Laugardaginn 24. október er alþjóðlegur PolioPlus-dagur Rótarý.

Dagurinn minnir okkur á eitt stærsta mannúðarverkefni í sögu Rótarý og mikilvægi þess að við stöndum áfram saman í baráttunni fyrir heimi án lömunarveiki.

Árið 1985 hóf Rótarý alþjóðlegt átak til að útrýma lömunarveiki í heiminum. Síðan þá hefur gríðarlegur árangur náðst og tilfellum lömunarveiki fækkað um meira en 99%. Rótarý hefur lagt til ómetanlegt framlag með fjáröflun, fræðslu og sjálfboðastarfi í samstarfi við alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld og aðra samstarfsaðila. Þetta er árangur sem rótarýfélagar geta verið stoltir af.

En verkefninu er ekki lokið

Lömunarveiki er enn til staðar í heiminum og þar til henni hefur verið útrýmt með öllu er hætta á að hún breiðist aftur út. Ekki má því slaka á. Hvert framlag, stórt sem smátt, skiptir máli og hjálpar til við að tryggja að börn um allan heim fái bólusetningu og vernd gegn þessum alvarlega sjúkdómi.

Hvað getum við gert?

Rótarýklúbbar á Íslandi eru hvattir til að minnast PolioPlus-dagsins og vekja athygli á verkefninu í sínu nærumhverfi.

Við getum meðal annars:

Stutt fjáröflun til PolioPlus og hvatt félagsmenn til að leggja verkefninu lið.

  • Styrktu verkefnið á www.rotary.is/leggdu-lid Þar getur þú líka fengið nánari upplýsingar.
  • Vakið athygli á verkefninu á samfélagsmiðlum, á fundum og í samtölum við fólk í okkar nærumhverfi.
  • Deilt upplýsingum um árangur Rótarý og minnt á hvers vegna er mikilvægt að halda baráttunni áfram.
  • Hvatt fleiri til þátttöku og sýnt í verki að Rótarý lætur sig heilbrigði og framtíð barna um allan heim varða.

PolioPlus er einstakt dæmi um það sem alþjóðlegt samstarf, þrautseigja og sameiginleg ábyrgð geta áorkað.

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum