Latest blog posts

Written by our founders and volunteers, keeping you up to date!

Polio Plus dagurinn er 24. október

Laugardaginn 24. október er alþjóðlegur PolioPlus-dagur Rótarý.Dagurinn minnir okkur á eitt stærsta mannúðarverkefni í sögu Rótarý og mikilvægi þess að við stöndum áfram saman í baráttunni fyrir heimi án lömunarveiki.Árið 1985 hóf Rótarý alþjóðlegt átak til að útrýma lömunarveiki í heiminum. Síðan þá hefur gríðarlegur árangur náðst og tilfellum lömunarveiki fækkað um meira en 99%. Rótarý hefur lagt til ómetanlegt framlag með fjáröflun, fræðslu og sjálfboðastarfi í samstarfi við alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld og aðra samstarfsaðila. Þetta er árangur sem rótarýfélagar geta...

Úlfastundir og Skólahljómsveit Mosfellsbæjar fengu viðurkenningu og styrk

Á Umdæmisþingi Rótarý á Íslandi, 10. október sl. voru viðurkenningar veittar úr Verðlauna- og styrktarsjóði Rótarý.Skólahljómsveit Mosfellsbæjar fékk viðurkenningu og styrk fyrir að vera hornsteinn menningar- og tónlistarstarfs fyrir ungmenni í Mosfellsbæ og Úlfastundir fengu viðurkenningu og styrk fyrir nýtt form á fræðslustarfi/sunnudagaskóla fyrir ung börn og fjölskyldur þeirra í Lágafellskirkju. Úlfastundir Framlag verkefnisins til fræðslustarfs fyrir ung börn liggur í þrennu:Tímasetningin. Að færa starfið úr helgarmorgni yfir í síðdegi virks dags er einföld breyting en breytir í grundvallaratriðum því...
00:01:35

Keflvíkingar bjóða til umdæmisþings 2027

Undirbúningur er þegar hafinn að Umdæmisþingi Rótarý 2027.Rótarýklúbbur Keflavíkur hefur umsjón með þinginu en næsti umdæmisstjóri, Ingibjörn Sigurðsson er félagi í Rótarýklúbbi Keflavíkur.Kynningarmyndbandið var kynnt í lok Umdæmisþings Rótarý 2026 sem lauk í Mosfellsbæ í gær.

Sigríður Björk afhenti Elísabetu umdæmisstjórakeðjuna

Umdæmisstjóraskipti voru í kvöld, þó nýtt starfsár hefjist ekki formlega fyrr en 1. júlí. Skiptin fóru fram að lokinni forsetaskiptum í Rótarýklúbbi Mosfellssveitar.Sigríður Björk Gunnarsdóttir, úr Rótarýklúbbnum Hofi, sem gegnt hefur embætti umdæmisstjóri þetta starfsár af mikill röggsemi, afhenti Elísabetu Sigurveigu Ólafsdóttur úr Rótarýklúbbi Mosfellssveitar umdæmisstjórakeðjuna og óskaði henni velfarnaðar en Elísabet verður umdæmisstjóri 2026-2027.Elísabet ávarpaði gesti og sagði traustvekjandi að taka við með svona samheldinn klúbb á bak við sig. Sagðist ætla að leggja sig alla fram við...

Stóri plokkdagurinn er á morgun, 26. apríl.

7Rótarýklúbbar um land allt taka þátt í deginum ásamt mörgum áhugasömum plokkurum. Rótarý á Íslandi hvetur landsmenn til að taka þátt og leggja þessu góða verkefni lið.Setningarathöfn Setningarathöfn verður við Krónuna  við Akrabraut í Garðabæ og hefst hún kl. 10.30.  Fólk er hvatt til að taka þátt og hreinsa umhverfið í góðum félagsskap. Plokk um land allt Rótarýklúbbar eru með sína eigin viðburði og sumir klúbbar vinna saman þennan dag. Allir eru hvattir til að taka þátt þennan dag, einstaklingar, fjölskyldur, vinir, húsfélög,...

Related Images: