Nú er rétti tíminn til að kynna fyrir ungmennum fæddum á árunum 2009-2011 skiptinemastarf Rótarýhreyfingarinnar, en ungmennaþjónustan er fimmta þjónustuleið okkar og það að taka á móti og senda skiptinema milli landa er þáttur í alþjóðlegu friðarstarfi hreyfingarinnar.
Rótarýklúbbur sendir skiptinema og tekur á móti erlendum nema á meðan.
Ávinningur nemendaskipta er ótvíræður því nemandinn:
- Lærir annað tungumál en móðurmálið
- Kynnist menningu framandi þjóða
- Öðlast reynslu daglegs lífs í framandi landi
- Stofnar til vináttu við fjölskyldur og skólafélaga
- Kynnist hugsjón Rótarý í verki
- Er þátttakandi í starfi rótarýklúbbs og væntanlegur rótarýfélagi framtíðarinnar.
Skiptinemar þurfa að vera orðnir 16 ára en ekki eldri en 18 ára þann 1. september árið sem dvölin erlendis hefst. (Einhver lönd gera undantekningu á þessu).
Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár 2027-2028 er til 1. desember nk. og er sótt um hjá rótarýklúbbi.
Skiptin eru gagnkvæm þannig að þeir klúbbar sem senda nemendur utan taka á móti jafnmörgum erlendum nemendum í staðinn.
Frekari upplýsingar eru að finna hér: Ungt fólk og Rótarý







