Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi verða í Salnum í Kópavogi þann 4. janúar næstkomandi.
Víkingur Heiðar afhendir styrki Tónlistarsjóðs Rótarý
Sérstakur heiðursgestur tónleikanna verður Víkingur Heiðar Ólafsson einn fremsti píanóleikari heims og styrkþegi sjóðsins árið 2005.
Víkingur mun afhenda styrki Tónlistarsjóðs Rótarý á tónleikunum og munu styrkþegarnir leika fyrir gesti ásamt fleira tónlistarfólki sem fengið hefur styrki sjóðsins í gegnum árin.
Styrkþegar ársins
Á tónleikunum koma fram styrkþegar sjóðsins í ár:
- Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðluleikari
- Ásta Dóra Finnsdóttir, píanóleikari
Þá mun Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópransöngkona og styrkþegi sjóðsins árið 2018 syngja en hún sló í gegn í Brúðkaupi Fígarós í vor. Með henni leikur Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari.
Þá munu Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari og styrkþegi 2018 og Guðbjartur Hákonarson, fiðluleikari og styrkþegi 2023 einnig koma fram.
Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi
Tilgangur Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Veitt er úr sjóðnum árlega.
Tilvalin jólagjöf – Kauptu miða
Miði á tónleikana er tilvalin jólagjöf en með kaupum á miða ertu að styrkja Tónlistarsjóð Rótarý til áframhaldandi verka til stuðnings ungu tónlistarfólks.
Kauptu miða strax á Tix – smelltu á tengilinn
Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi 2026 | Tix






