Dagur Jónsson er eini skiptineminn sem fer utan á vegum Rótarý í ár.
Hann er sonur hjónanna Jóns Hermannssonar og Birnu Sigfríðar Björgvinsdóttur sem búa í Garðabæ.

Dagur hefur verið í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ en er nú farin til Brasilíu og er að njóta sín þar. Hann fór á vegum Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar en sá klúbbur hefur verið með mjög öflugt skiptinemastarf í gegnum tíðina.
Brasilískur skíptinema
Rayanne Lavinia Crescencio frá Brasilíu verður hér í vetur en hún kom um miðjan ágúst. Hún er í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og er búsett í Garðabæ, hjá foreldrum Dags.

Finna má upplýsingar um skiptinemastarfið hér.
Skiptinemi til eins árs – Rótarý á Íslandi






