HeimFréttirKlúbbafréttirEldhugi Kópavogs kemur úr röðum Hjálparsveitar skáta

Eldhugi Kópavogs kemur úr röðum Hjálparsveitar skáta

Rótarýklúbbur Kópavogs hefur útnefnd Eldhuga Kópavogs 2026.

Markmiðið með eldhugavalinu er að útnefna Kópavogsbúa, sem vakið hefur athygli og þykir hafa skarað fram úr í störfum sínum og athöfnum og verið öðrum fyrirmynd.

Þetta er í 29. skipti sem Eldhugi Kópavogs er útnefndur en alls hafa 30 verið útnefndir.

Guðmundur K. Einarsson er Eldhugi Kópavogs 2026

Í ár varð Guðmundur K. Einarsson, félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, fyrir valinu.

Guðmundur K Einarsson fæddist í Darmstadt í Þýskalandi árið 1959, þar sem faðir hans var við nám í vélaverkfræði. Guðmundur á ættir að rekja m.a. til Siglufjarðar og Vestmannaeyja. Guðmundur fluttist í Kópavoginn 6 ára gamall og hefur búið hér alla tíð síðan. Hann lauk hefðbundinni skólagöngu í Kópavogi og starfsferill hans hefur að mestu verið í Álverinu í Straumsvík. 

Guðmundur gerðist ungur að árum skáti í Skátafélaginu Kópum. En nokkur þáttaskil urðu í lífi hans, þegar hann gekk til liðs við Hjálparsveit skáta í Kópavogi árið 1978. Má segja að þar hafi hann fundið fjölina sína. Hefur hann starfað í sveitinni óslitið síðan þá og lagt mikið af mörkum. Hann var til dæmis í stjórn sveitarinnar í ein 16 ár og tæplega helming þess tíma var hann gjaldkeri.

Guðmundur er einn reynslumesti sjálfboðaliði innan Hjálparsveitar skáta í Kópavogi með áratuga reynslu af neyðar- og leitarstarfi. Hefur hann hlotið vottanir í fyrstu hjálp og sjúkraflutningum, leiðtogamenntun innan skátahreyfingarinnar auk sérhæfðrar þjálfunar í leit og björgun í fjöllum og óaðgengilegu landslagi. Einnig hefur hann reynslu af samstarfi við slökkvilið, lögreglu og almannavarnir við viðbragðsáætlanir og neyðarviðbrögð.

Þá hefur Guðmundur tekið virkan þáttí viðburðum og fjáröflun til að styðja starf sveitarinnar og ber þar hæst flugeldasalan. En þar er framlag hans með ólíkindum. Ósjaldan hefur hann tekið sér frí frá vinnu til að sinna þessari mikilvægustu fjáröflun sveitarinnar.

Tilnefndur af jafningjum

Við val á Eldhuga Kópavogs undanfarin ár hefur athyglin yfirleitt beinst að einstaklingum sem hafa sem slíkir vakið athygli fyrir störf sín. Að þessu sinni var það Hjálparsveit skáta í Kópavogi sem hafði vakið athygli Viðurkenningarnefndar Rótarýklúbbs Kópavogs og spurning vaknaði hvort einhver einstaklingur innan sveitarinnar kæmi til greina sem Eldhugi Kópavogs.

„Fyrirfram vorum við nokkuð efins um að einhugur gæti verið innan hjálparsveitarinnar um að taka einhvern einn félaga út úr og veita honum slíka viðurkenningu. Það kom okkur því mjög ánægjulega á óvart að allir þeir sem var leitað álits hjá voru einhuga um að Guðmundur K Einarsson væri nánast sjálfkjörinn af hálfu hjálparsveitarinna til að hljóta þessa viðurkenningu,“ segir Guðmundur Jens Þorvarðarson, formaður viðurkenningarnefndar.

Páll Árni Jónsson, forseti Rótarýklúbbs Kópavogs afhenti Guðmundi viðurkenningu Eldhuga Kópavogs árið 2026.

Eldhugar Kópavogs frá upphafi

1997​ Jónas Ingimundarson
1998​ Þórunn Björnsdóttir
1999​ Guðmundur H Jónsson
2000​ Ævar Jóhannesson
2001​ Þorsteinn Einarsson
2002 Gylfi Gröndal
2003​ Ásdís Skúladóttir
2004​ Þorvaldur Jacob Sigmarsson
2005​ Ásgeir Jóhannesson
2006​ Sigríður Einarsdóttir​
2006 Sólveig Jónasdóttir
2007​ Anna Bjarnadóttir
2008​ Marteinn Sigurgeirsson
2009​ Páll Theódórsson
2010 Össur Geirsson
2011 Þorbjörn Jensson
2012 Magnús Jakobsson
2013 Margrét Bjarnadóttir
2014 Guðbjörg Kristjánsdóttir
2015 Vilmundur Guðnason
2016 Þórður Guðmundsson
2017 Hallfríður Ólafsdóttir
2018 Þórður Árnason
2019 Helgi Ólafsson
2020 Magnús Gíslason
2022 Helga Guðrún Gunnarsdóttir
2023 Bjarki Sveinbjörnsson
2024 Sigurður Reynir Gíslason
2025 Árni Harðarson
2026 Guðmundur K. Einarsson

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum