HeimFréttirKlúbbafréttirIngibjörg Jakobína fékk Hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Grafarvogs

Ingibjörg Jakobína fékk Hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Grafarvogs

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Grafarvogur hefur árlega veitt hvatningarverðlaun, fyrst í Rimaskóla fyrir námsárangur á sviði umhverfis- og samfélagsmála en hin síðari ár til nemenda í Borgarholtsskóla, bæði á vor- og vetrarútskrift. Í samvinnu við kennara skólans fá þeir nemendur verðlaun sem sýna eftirtektarverðar framfarir. Framtakið hefur mælst vel fyrir.

Verðlaunahafinn í ár er Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir.

Ingibjörg er útskrifuð sem grafískur hönnuður og í umsögn segir: „Ingibjörg er einstaklega duglegur námsmaður sem hefur sýnt miklar framfarir í námi síðustu annirnar. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur hún alltaf sýnt alveg einstaklega jákvætt hugarfar og fallega framkomu. Hún hefur einnig staðið sig frábærlega í tengslum við félagslíf nemenda en síðustu tvö ár hefur hún haldið utan um Japansklúbb skólans sem hittist í hverri viku og með fjölbreyttar og skemmtilegar uppákomur.“

Rótarýklúbburinn hefur síðustu fimm ár gefið peningaverðlaun, 75 þúsund krónur, til nemanda sem hefur sýnt lofsverðar framfarir í námi.  Nemandinn er tilnefndur af kennurum skólans en fulltrúar Rótarýklúbbs Grafarvogs staðfestir valið. Með peningaverðlaunum fylgir áritað skjal.

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum