Latest blog posts
Written by our founders and volunteers, keeping you up to date!
Eldhugi Kópavogs kemur úr röðum Hjálparsveitar skáta
Rótarýklúbbur Kópavogs hefur útnefnd Eldhuga Kópavogs 2026.Markmiðið með eldhugavalinu er að útnefna Kópavogsbúa, sem vakið hefur athygli og þykir hafa skarað fram úr í störfum sínum og athöfnum og verið öðrum fyrirmynd.Þetta er í 29. skipti sem Eldhugi Kópavogs er útnefndur en alls hafa 30 verið útnefndir.
Guðmundur K. Einarsson er Eldhugi Kópavogs 2026
Í ár varð Guðmundur K. Einarsson, félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, fyrir valinu.Guðmundur K Einarsson fæddist í Darmstadt í Þýskalandi árið 1959, þar sem faðir hans...
Ingibjörg Jakobína fékk Hvatningarverðlaun Rótarýklúbbs Grafarvogs
Rótarýklúbburinn Reykjavík-Grafarvogur hefur árlega veitt hvatningarverðlaun, fyrst í Rimaskóla fyrir námsárangur á sviði umhverfis- og samfélagsmála en hin síðari ár til nemenda í Borgarholtsskóla, bæði á vor- og vetrarútskrift. Í samvinnu við kennara skólans fá þeir nemendur verðlaun sem sýna eftirtektarverðar framfarir. Framtakið hefur mælst vel fyrir.Verðlaunahafinn í ár er Ingibjörg Jakobína Jónsdóttir.Ingibjörg er útskrifuð sem grafískur hönnuður og í umsögn segir: „Ingibjörg er einstaklega duglegur námsmaður sem hefur sýnt miklar framfarir í námi síðustu annirnar. Þrátt fyrir erfiðar...
Styrkir voru veittir á glæsilegum hátíðartónleikum
Hátíðartónleikar Rótarý voru haldnir í Salnum í Kópavogi í dag og var uppselt.Þar fengu þær Ásta Dóra Finnsdóttir, píanóleikari og Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðluleikari afhenta styrki úr Tónlistarsjóði Rótarý á Íslandi en hvor styrkur er ein milljón krónur.Víkingur Heiðar Ólafsson, fyrsti styrkþegi Tónlistarstjóðsins árið 2005, afhenti styrkina og hóf tónleikana með því að leika verk eftir Bach á nýja flygilinn í Salnum við mikinn fögnuð gesta.Á hátíðartónleikunum komu fram, ásamt Helgu Diljá og Ástu Dóru, þau Jóna G. Kolbrúnardóttir,...
Spennandi Hátíðartónleikar Rótarý 4. janúar í Salnum
Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi verða í Salnum í Kópavogi þann 4. janúar næstkomandi.
Víkingur Heiðar afhendir styrki Tónlistarsjóðs Rótarý
Sérstakur heiðursgestur tónleikanna verður Víkingur Heiðar Ólafsson einn fremsti píanóleikari heims og styrkþegi sjóðsins árið 2005. Víkingur mun afhenda styrki Tónlistarsjóðs Rótarý á tónleikunum og munu styrkþegarnir leika fyrir gesti ásamt fleira tónlistarfólki sem fengið hefur styrki sjóðsins í gegnum árin.
Styrkþegar ársins
Á tónleikunum koma fram styrkþegar sjóðsins í ár:Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðluleikari
Ásta Dóra Finnsdóttir, píanóleikariÞá mun Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópransöngkona og...
Rótarýklúbbur gaf tæki til útskurðar
Rótarýklúbburinn Reykjavík-Landvættir færði nýlega Vin, fræðslu- og batasetri góða gjöf sem var vel tekið.Gjöfin eru ýmis tól og tæki til úrskurðar að verðmæti um 100 þúsund krónur.Á hverjum mánudegi koma margir gestir Vinjar saman og tálga áhugaverða hluti og skera út og fá til þess leiðsögn. Þar sem ekki eru sterk fjárráð hjá VIn kom gjöf rótarýklúbbsins sér einstaklega vel.Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir; helsta hlutverk Vinjar að draga úr félagslegri einangrun og skapa vinalegt umhverfi fyrir...










