Stóri plokkdagurinn er á morgun, 27. apríl.
Rótarýklúbbar víða um landa taka þátt í deginum og um leið hvetja landsmenn til að taka þátt.
Setningarathöfn verður við Sopru við Jafnarsel í Reykjavík og hefst kl. 10 og er fólk er hvatt til að taka þátt.
Rótarýklúbbar eru með sínar eigin viðburði og sumir klúbbar vinna saman þennan dag.
„Við viljum hvetja alla til að taka þátt – húsfélög, fyrirtæki, stofnanir – plokk á í raun að vera í gangi allt árið. Náttúran þarf aðstoð og við getum lagt okkar af mörkum – með einföldum poka og priki,“ segir Jón Karl Ólafsson umdæmisstjóri Rótarýmumdæmisins á Íslandi.
Stóri plokkdagurinn er í umsjá Rótarýhreyfingarinnar og er styrkt af umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins og Landsvirkjunar.
Góða skemmtun á morgun.