Umdæmisstjóri
Umdæmisstjóri er fulltrúi Alþjóðahreyfingarinnar í umdæminu. Kjör hans fer fram í umdæminu en er staðfest á Allsherjarþingi Rotary International.
Umdæmisstjóri er kosinn til eins árs, tvö ár fram í tímann, og er embættisár hans frá 1. júlí til 30. júní. Hann skal vera virtur félagi í starfandi klúbbi í umdæminu og skal hafa gegnt embætti klúbbforseta. Áður en hann tekur við embætti sækir hann námskeið hjá Alþjóðahreyfingunni, International Assembly, þar sem línur starfsársins eru lagðar.
Umdæmisstjóri á að styðja klúbbana í starfi, hvetja þá og fræða og stuðla að stofnun nýrra klúbba. Á starfsárinu heimsækir hann alla klúbba a.m.k. einu sinni. Hann er tengiliður klúbbanna, bæði innanlands og við Alþjóðahreyfinguna. Hann gefur reglulega út mánaðarbréf til forseta og ritara, sem sent er í klúbbana og jafnframt birt á vefsíðu umdæmis.
Umdæmisstjóri stendur fyrir árlegu umdæmisþingi og nýtur þar fulltingis klúbbfélaga sinna. Sjá nánar um störf umdæmisstjóra á bls. 24-26 í Manual of Procedure 2004.
- Netfang umdæmisstjóra er umdstjori@rotary.is
