Fimmtudagur, 20. mars 2025
HeimFréttirStyrkirHátíðar- og styrktartónleikar Rótarý laugardaginn 1. mars

Hátíðar- og styrktartónleikar Rótarý laugardaginn 1. mars

Hátíðar- og styrktartónleikar Rótarý verða í Salnum í Kópavogi þann 1. mars n.k.

Dagskráin hefst klukkan 17.00.

Fram munu koma styrkþegar Tónlistarsjóðs Rótary 2025, Hjörtur Páll Eggertsson, hljómsveitarstjóri og sellóleikari og Kristín Ýr Jónsdóttir, flautuleikari.

Þá munu einnig stíga á svið Bryndís Guðjónsdóttir, sópransöngkona  og Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari, en hann var annar styrkþega 2024.  

Gert er ráð fyrir léttum veitingum í hléi.  

Allur ágóði af tónleikum rennur til Tónlistarsjóðs Rótarý og mun fara beint til að fjármagna áframhaldandi styrki til efnilegs tónlistarfólks. 

Rótarýfélagar eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti. 

Viðburður telst sem fundur og kemur fram sem mæting fyrir þá sem skrá sig hér á viðburðinn.

Starf Tónlistarsjóðs byggir á framlagi okkar og því er mjög mikilvægt, að sem flestir Rótarýfélagar komi og taki helst með sér gesti.  Pláss er fyrir um 400 gesti á tónleikum.

Sjá nánar um Tónlistarsjóðinn og styrkþega fyrri ára hér.

Miðasala er á Tix.is

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum