Miðvikudagur, 16. október 2024
HeimFréttirHátíðarfundur Rótarýdagsins 23. febrúar 2021

Hátíðarfundur Rótarýdagsins 23. febrúar 2021

Á Rótarýdaginn mun rótarýfólk í landinu vekja athygli á störfum hreyfingarinnar að verkefnum í nærsamfélaginu og á alþjóðavísu, í samræmi við kjörorð Soffíu Gísladóttur, umdæmisstjóra: „Stígum stolt fram.“

Síðdegis verður rótarýfundur í beinni útsendingu í netheimum kl. 17:00 frá Rótarýskrifstofunni í Reykjavík. Þar fær umdæmisstjóri góða gesti í sófann.

Dagskrá fundarins verður þessi:

  • Soffía Gísladóttir, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi setur fund.
  • Guðríður Helgadóttir (Gurrý), verðandi forseti í Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi, flytur 3ja mínútna erindi.
  • Bala Kamallakharan, félagi í Rótarý Reykjavík International, verður með fréttaskotið um Pudiyador-verkefnið í Chennai á Indlandi.
  • Tónlistaratriði: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópransöngkona og styrkþegi Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi 2020.
  • Aðalerindi fundarins: Bogi Ágústsson, fréttamaður, fjallar um stöðuna í stjórnmálum vestan hafs.
  • Kynningarmyndband Rótarýklúbbs Héraðsbúa um umdæmisþing Rótarý á Íslandi sem haldið verður á Austurlandi í október 2021.
  • Soffía Gísladóttir, umdæmisstjóri, slítur fundi.

Þarna gefst kjörið tækifæri til að bjóða áhugasömum gestum að setjast við tölvuna og líta inn á rótarýfund.

 

 

 

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum