Rótarýklúbbur Kópavogs heiðraði nýlega á fundi sínum „Eldhuga Kópavogs 2022″. Viðurkenninguna í ár hlýtur Helga Guðrún Gunnarsdóttir fyrir frumkvæði sitt og framlag til sundleikfimi í sundlaugum Kópavogs. Í þakkarávarpi hennar kom fram að allt að 140 manns væru í hverjum tíma hjá henni.
Í ávarpi sem Ásgeir Jóhannesson, félagi í Rkl. Kópavogs og fyrrverandi umdæmisstjori samdi en Guðmundur Jens Þorvarðarson fyrrv. umdæmisstjóri flutti, kom fram að Helga Guðrún er fædd 17. mars 1955 og ólst upp í Ólafsvík. Hún hóf atvinnuþátttöku ung eins og flestir unglingar í sjávarþorpum á þeim tíma, meðal annars í frystihúsi, við beitningar og var kokkur til sjós.
Eftir að Helga fluttist suður vann hún t.d. í prentsmiðju og í fjölda ára hjá Morgunblaðinu m.a. við blaðamannastörf. Eftir að hún hætti hjá Morgunblaðinu tók hún stúdentspróf með vinnu og fór að því loknu í margmiðlunarnám í Tækniskólanum í Reykjavík. Síðan fór hún með fyrrverandi tengdadóttur og barnabarni til Barcelona; þar fór hún í spænskunám og leit eftir barnabarninu. Nokkru síðar fór hún aftur til Barcelona og hélt áfram spænskunámi í nokkra mánuði.
Næst lá leið Helgu í Háskóla Íslands í heimspeki. Eftir fyrsta árið gat hún ekki séð að hún hefði mikla atvinnumöguleika í því fagi og venti sínu kvæði í kross og fór í íþróttafræði á Laugarvatni. Helga Guðrún útskrifaðist úr íþróttafræði mánuði áður en hún varð sextíu ára og er elsti útskriftarnemandi úr íþróttafræðí hér á landi svo vitað sé.
Meðan á námi stóð ákvað hún að einbeita sér að hreyfingu fyrir eldri aldurshópa, 45+.
Frá hausti 2014 hefur Helga Guðrún séð um þjálfun í vatni fyrir eldri aldurshópa í Sundlaug Kópavogs á vegum Kópavogsbæjar. Þeir tímar eru 3x í viku og stendur öllum ókeypis til boða. Einnig er hún með námskeið fyrir þrjá aðra hópa sem hægt er að kaupa sér aðgang að. Kópavogsbær veitti henni Hvatningarverðlaun Kópavogsbæjar árið 2021, en það er í fyrsta skipti sem þau verðlaun eru veitt. Í umsögn segir að hún hafi boðið upp á nýja nálgun í hreyfingu og sé á pari við lýðheilsumarkmið bæjarins.
Helga á tvö börn; Gunnar sjórnmálafræðingur, á fjögur börn og býr í Reykjavíik. Berglind sálfræðingur og býr og starfar í Osló; hún á þrjú börn.
„Við sem ólumst upp í Ólafsvík með Helgu Guðrúnu og höfum fylgst að í gegnum lífið berum mikla virðingu fyrir dugnaði og krafti hennar og vitum að hún lætur ekkert stoppa sig“, sagði Ásgeir Jóhannesson í ávarpinu.