Laugardagur, 18. janúar 2025
HeimFréttirSvipmyndir frá umdæmisþingi 2019

Svipmyndir frá umdæmisþingi 2019

Góðra vina rótarýfundur hjá Rkl. Borgum

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, bauð gesti velkomna til móttöku í boði Kópavogsbæjar. Hann sló á létta strengi en gerði einnig grein fyrir uppbyggingu og þróun bæjarins. Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í stefnu bæjarins. Kópavogur verður fyrsta sveitarfélag á Íslandi til þess að innleiða Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna með formlegum hætti.
Viðstaddir tóku hressilega undir þegar Garðar Cortes, óperusöngvari og félagi í Rkl. Borgum, hóf upp rödd sína sem forsöngvarari og stjórnaði „Öxar við ána“.
Fundargestir nutu góðra veitinga og margra dagskráratriða. Þarna gafst líka ágætt tækifæri fyrir leiðtoga rótarýklúbbanna um allt land til að ræða sameiginleg áhugamál í upphafi umdæmisþings.
Ásdís Helga Bjarnadóttir, forseti Rkl. Héraðsbúa, hefur verið tilnefnd umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi 2021-2022. Hún var kynnt á rótarýfundinum í Kópavogi og flutti síðan stutt ávarp. Ásdís Helga, sem er fimmtug að aldri, starfar hjá Umhverfisstofnun á Egilsstöðum sem sérfræðingur innan veiði- og verndarteymis. Ásdís Helga er fædd og uppalin á Hvanneyri og stundaði nám við Reykholtsskóla en lauk síðan B.Sc. námi í búsvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands og útskrifaðist frá Norges Landbrukshøjskole með Cand.Agric.- gráðu árið 1997. Hún hefur verið virk innan ungmennasambanda Borgarfjarðar og Austurlands og keppt og þjálfað í ýmsum íþróttagreinum.
Erlendir skiptinemar, sem hér dveljast á yfirstandandi skólaári, ávörpuðu fundinn og sögðu frá reynslu sinni. Þau eru talið frá vinstri: Carlee Elaine Goold, D5440 USA, sem dvelst hér á vegum Rkl. Rvk. Breiðholt, Mateus Maia Fabro, D4470 Brasilíu, hjá Rkl. Hafnarfjarðar og Pauline Clémentine Anne Josette Dano, D1650 Frakklandi, hjá Rkl. Akureyrar.
Það var að mörgu að hyggja hjá Önnu Stefánsdóttur, umdæmisstjóra Rótarý 2019-2020. Hún lét í ljós þakklæti til félaga sinna í Rkl. Borgum, sem undirbjuggu umdæmisþingið, og veitti upplýsingar um framkvæmd þingsins
Samkvæmt rótarýhefð var fulltrúi alþjóðaforseta Rótarý kominn til að taka þátt í umdæmisþinginu. Að þessu sinni var það Patrick Callaghan, fyrrv. umdæmisstjóri frá Írlandi, sem nú starfar að leiðtogaþjálfun fyrir Rótarý. Guðlaug Rakel, forseti Rkl. Borgum, færði honum fána klúbbsins.
Náið norrænt samstarf hefur þróast innan Rótarý. Leiðtogar umdæma eiga fundi saman og gagnkvæmar heimsóknir á umdæmisþing hafa lengi tíðkast. Að þessu sinni var Virpi Honkala fulltrúi norrænu rótarýumdæmanna á umdæmisþinginu. Hún er læknir og hefur gegnt störfum umdæmisstjóra í umdæmi 1400 í Finnlandi. Þá tekur hún sæti í stjórn Rotary International 2020-2022 sem framkvæmdastjóri.

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum