Miðvikudagur, 15. janúar 2025
HeimFréttirStyrkirRótarýtónleikarnir verða 16. apríl

Rótarýtónleikarnir verða 16. apríl

Tónlistarstyrkr Rótarý verða afhentir

Árlegir hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi verð haldnir í Grafarvogskirkju 16. apríl kl. 16.

Á tónleikunum verða Tónlistarstyrkir Rótarý afhentir en þeir eru veittir árlega ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Til þessa hafa 30 einstaklingar hlotið styrkinn síðustu 18 ár. Nánar má fræðast um Tónlistarstyrki Rótarý hér.

Í ár eru það Flemming Viðar Valmundsson, harmóníkuleikari og Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari sem hljóta Tónlistarstyrki Rótarý.

Dísella og Gissur Páll gestir tónleikanna

Gestir tónleikanna verða einsöngvararnir Dísella Lárusdóttir sópran og Gissur Páll Gissurarson tenór sem munu gleðja tónleikagesti með söng sínum.

Lára Bryndís Eggertsdóttir, organisti í Grafavogskirkju mun leika fyrir tónleikagesti valin orgelverk og kynnaÍ nýtt hljómfagurt pípuorgel kirkjunnar. Lára Bryndís fékk einmitt tónlistarstyrk Rótarý árið 2019.

Flemming Viðar Valmundsson, harmóníkuleikari og annar styrkþeganna mun leika á harmóníkuna

Rótarýklúbburinn Reykjavík-Grafarvogur heldur utan um framkvæmd tónleikanna.

Miðasala er á tix.is en miðaverð er aðeins 4.500 kr.

Related Images:

RELATED ARTICLES
- Advertisment -

Nýjast

Fréttir af klúbbunum